Gleðilegan kjördag!
Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið hófst í morgun og opnuðu kjörstaðir klukkan 9:00.
Kjörstaðir í Reykjavík eru 25 talsins og skiptast í Reykjavíkurkjördæmi norður og Reykjavíkurkjördæmi suður.
Kjörstöðum lokar klukkan 22 og að því loknu hefst talning atkvæða. Talningin fer fram fyrir opnum tjöldum í Laugardalshöll. Beinst streymi frá talningunni verður á vef Reykjavíkurborgar.
Allar upplýsingar: atkvæðagreiðsla á auðlesnu máli.
Muna eftir skilríkjum
Kjósendur gera grein fyrir sér á kjörstað með því að framvísa skilríkjum. Greiðslukort og skilríki með mynd og kennitölu teljast fullgild. Kjósandi sem mætir skilríkjalaus á kjörstað getur leitað til hverfiskjörstjórnar og fengið aðstoð við að láta sannreyna hver hann er.
Aðsetur yfirkjörstjórnar Reykjavíkur verður í Ráðhúsi Reykjavíkur á kjörfundi og aðsetur yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður verður í Laugardalshöll á meðan á talningu stendur.
Allar upplýsingar varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna í Reykjavíkurborg eru veittar í síma 411-4915 og á netfanginu kosningar@reykjavik.is.
Nánar: reykjavik.is/kosningar