Upplýsingabæklingur um sveitastjórnarkosningar 2026 á auðlesnu máli
Miðstöð um auðlesið mál hefur útbúið upplýsingabækling um sveitarstjórnarkosningarnar 2026 á auðlesnu máli.
Markmiðið með bæklingum er að tryggja að allir hafi aðgang að skýrum upplýsingum um lýðræðisleg réttindi sín. Auðlesið mál er ekki einungis einföldun heldur mikilvægt aðgengistæki. Það tryggir að einstaklingar með lestrar- eða lesskilningsörðugleika hafi sama aðgang að upplýsingum og aðrir.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) leggur áherslu á að tryggja rétt fatlaðra til að fá upplýsingar á máli sem þeir skilja. Með auðlesnu máli er stuðlað að jöfnum tækifærum og sjálfstæði allra.
Það er mikilvægt að fólk fái tækifæri til að kynna sér kosningarnar á auðlesnu máli sem er aðgengilegt öllum.
Í bæklingnum er fjallað um:
- Hvað sveitarstjórnarkosningar eru.
- Hvernig maður kýs (skref fyrir skref).
- Hvaða aðstoð er í boði á kjörstað.