Fötluðum framhaldsskólanemum boðin fjölbreytt störf í sumar
Fötluðum framhaldsskólanemum sem sækja frítímastarf Hins hússins verða boðin fjölbreytt sumarstörf í sumar. Í heildina bjóðast 75 ungmennum störf í fjóra tíma á dag. Það er umtalsverð fjölgun frá fyrra sumri þegar 55 ungmenni fengu sumarstarf.
Þetta var samþykkt á fundi menningar- og íþróttaráðs þann 10. apríl síðastliðinn. Tillögunni var vísað til borgarráðs sem tekur hana fyrir á fundi sínum á fimmtudag. Alls verður 18 milljónum króna varið til verkefnisins.
Markmiðið er að fötluð ungmenni fái að kynnast ýmsum störfum á almennum vinnumarkaði og læra hvernig vinnuumhverfi virkar, ásamt því að vinnumarkaðurinn fái að kynnast þeim sem verðmætum starfskröftum. Á síðustu árum hafa ungmennum boðist störf á vinnustöðum á borð við Krónuna, Árbæjarsafn, Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, Ásgarð, Hagkaup og Kirkjugarðar Reykjavíkur.
Frítímastarf að vinnudegi loknum
Hitt húsið heldur úti metnaðarfullu frítímastarfi fyrir fötluð ungmenni á veturna og munu sumarstörfin bjóðast þeim sem hafa stundað það. Sumarstarf Hins hússins spannar þrettán vikur og stendur frá frá 18. maí til 14. ágúst.
Fyrstu vikur sumarsins verða helgaðar sumarstörfunum. Ungmennin mæta þá í Hitt húsið á morgnana og fara þaðan ásamt starfsfólki Hins hússins í vinnuna. Eftir að vinnudegi lýkur tekur við frjálst frítímastarf til klukkan 16. Í framhaldi af vinnuvikunum, seinni 8 vikur sumarsins, verður boðið uppá fjölbreytt skipulagt frítímastarf út sumarið.