Menningar- og íþróttaráð - Fundur nr. 27

Menningar- og íþróttaráð

Ár 2026, föstudaginn 10. apríl var haldinn 27. fundur menningar- og íþróttaráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 09:03. Viðstödd voru: Skúli Helgason formaður, Ásta Björg Björgvinsdóttir varamaður fyrir Aðalstein Hauk Sverrisson, Björn Gíslason, Friðjón R Friðjónsson, Birkir Ingibjartsson varamaður fyrir Jón Kristinn Ólafsson, Sara Björg Sigurðardóttur og Stefán Pálsson. Jafnframt:  Frímann Ari Ferdinandsson varaáheyrnarfulltrúi ÍBR og Jóna Hlíf Halldórsdóttir áheyrnarfulltrúi BÍL. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Elín Hrefna Ólafsdóttir, Arnfríður S Valdimarsdóttir, Atli Steinn Árnason, Helga Friðriksdóttir, Fany Larota Catunta og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð. 

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofa borgarstjórnar dags. 7. apríl 2026 þar sem fram kemur að á fundi forsætisnefndar þann 27. mars 2026 hafi verið samþykktar verklagsreglur um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar og beiðnir borgarfulltrúa um aðgang að gögnum. Óskað var eftir að reglurnar væru kynntar á fundi menningar- og íþróttaráðs. MSS23090170.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna um sumarstörf fatlaðra framhaldskólanema: 

    Lagt er til að fötluðum framhaldsskólanemum í þjónustu Hins Hússins verði boðin sumarstörf sumarið 2026. Alls verði varið 18 m.kr. til verkefnisins sem dugi til að bjóða 75 nemendum sumarstörf í fjóra tíma á dag í fjórar vikur.

    Greinargerð fylgir tillögunni.

    Samþykkt.

    Vísað til borgarráðs. MIR26040001.

     

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hitt húsið heldur úti metnaðarfullu og mikilvægu frístundastarfi með fötluðum framhaldsskólanemum sem er í senn lögbundið verkefni og hluti af öflugu mennta- og velferðarsamfélagi borgarinnar. Veigamikill hluti af þessu starfi felst í því að útvega umræddum ungmennum störf yfir sumartímann. Með tillögunni er menningar- og íþróttaráð að tryggja 75 ungmennum störf á komandi sumri við fjölbreytt verkefni.

    Fylgigögn

  3. Lögð fram trúnaðarmerkt tillagafulltrúa Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna, dags. 8. apríl 2026, um endurreisn Úrbótasjóðs tónleikastaða.

    Samþykkt

    Vísað til borgarráðs.

     

    Bókun undir þessum lið er færð í trúnaðarbók.

  4. Lagt fram trúnaðarmerkt minnisblað skrifstofustjóra menningarborgarinnar, dags. 9. apríl 2026, varðandi stuðning Tónlistarborgarinnar við uppbyggingu æfingaaðstöðu í Hafnarhaus (Hlemmur.Haus). 

    Bókun undir þessum lið er færð í trúnaðarbók.

    kl. 09:12 tekur Helga Friðriksdóttir sæti á fundinum

  5. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna, dags. 8. apríl 2026 um opnunartíma sundstaða í sumar:

    Lagt er til að opnunartími sundlauga verði lengdur til kl. 22 um helgar í sumar frá 1. júní til 31. ágúst 2026.

    Greinargerð fylgir tillögunni.

    Samþykkt.

    Vísað til borgarráðs. MIR24020058

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Sundlaugar borgarinnar bjóða upp á hvað lengstan opnunartíma á landinu enda metnaðarmál að höfuðborgin sé í fararbroddi varðandi þjónustu sem er í senn heilsubót fyrir íbúana og mikilvægur hluti af lifandi borgarsamfélagi. Með þessari tillögu er lagt til að opnunartíminn verði lengdur á komandi sumri svo sundlaugar borgarinnar verði opnar lengur á kvöldin um helgar eða til kl. 22. Kostnaður við framkvæmdina nemur 7.5 m. kr. sem verður mætt með hagræðingu innan menningar- og íþróttasviðs.

    • kl. 09:25 víkur Jóna Hlíf Halldórsdóttir af fundi. 

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna, dags. 8. apríl 2026, um hagræðingaraðgerðir: 

    Lagt er til að ráðist verði í viðbótarhagræðingu á fjórum kostnaðarliðum í fjárhagsáætlun menningar- og íþróttasviðs sem nemur 35,9 m.kr. til að fjármagna tillögur samstarfsflokkanna um sumarstörf fatlaðra framhaldsskólanema, endurreisn úrbótasjóðs tónleikastaða, og lengri opnunartíma sundlauga í sumar. Nánari útlistun hagræðingarinnar er sem hér segir: 1. Leiga á hjólhýsastæði, hækkun á gjaldskrá frá og með 1. júní n.k. úr 30.000 kr. á mánuði í 45.000 kr. á mánuði þannig að útlagður kostnaður sviðsins standi undir þeim kostnaði sem sviðið ber af þessum rekstri. Tekjur vegna þessarar tillögu eru um 2,5 m.kr. 2. Styrktarpottur íþrótta. Ekki náðist að úthluta öllum pottinum fyrir árið 2026, lagt er til að nýta eftirstöðvarnar eða um 3,4 m. kr. í þessa hagræðingu. 3. Lagt er til að fækka stöðugildum í menningarborginni frá og með 1. júní n.k. Áætluð hagræðing er um 15 m.kr. 4. Lagt er til að fækka stöðugildum í Hinu Húsinu frá og með 1. júní n.k. Áætluð hagræðing er um 15 m.kr. Samtals: 35,9 m.kr.

     

    Greinargerð fylgir tillögunni.

    Samþykkt.

    Vísað til borgarráðs. MIR25080006

     

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Menningar- og íþróttasvið þarf að hagræða í fjárhagsramma sínum til að fjármagna tillögurnar um sumarstörf framhaldsskólanema, endurreisn Úrbótasjóðs tónleikastaða og lengri opnunartíma sundlauga í sumar. Lagt er til að það verði gert með ýmsum hætti þar sem mest munar um hagræðingu á launakostnað sviðsins með fækkun stöðugilda hjá menningarborginni og í Hinu húsinu þar sem svigrúm mun skapast með fámennari árgangi í frístundastarfi fatlaðra á komandi skólaári.

     

    Fylgigögn

  7. Fram fer kynning á drögum að starfs- og aðgerðaráætlun Fjölskyldu- og húsdýragarðsins 2026-2030. MIR25090002

    Lögð fram málsmeðferðartillaga um að starfs- og aðgerðaráætlun Fjölskyldu- og húsdýragarðsins verði vísað til sviðsstjóra til áframhaldandi meðferðar og framlagningar í nýju ráði að loknum borgarstjórnarkosningum.

    Samþykkt.

    Helena Gylfadóttir deildarstjóri Dýraþjónustu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  8. Samþykkt að taka á dagskrá og leggja fram skýrslu stýrihóps um gjaldskrár þjónustu á vegum menningar- og íþróttasviðs dags. 10. apríl 2026.MIR2405008

Fundi slitið kl. 10:16

Skúli Helgason Ásta Björg Björgvinsdóttir

Björn Gíslason Friðjón R. Friðjónsson

Sara Björg Sigurðardóttir Stefán Pálsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningar- og íþróttaráðs frá 10. apríl 2026