Fjölmenna á fræðslufundi um netsvik og heimilisofbeldi

Fræðslufundur sem haldinn var á Sléttunni var afar vel sóttur.
Samsett mynd af fólki á fræðslufundi hjá Sléttunni

Undanfarna daga hefur fjöldi fólks sótt fræðslufundi um netsvik og heimilisofbeldi. Fundirnir eru liður í fræðslufundaröð fyrir eldra fólk sem er samstarfsverkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.

Fundirnir hafa verið haldnir í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum borgarinnar víða um borg. Einnig á Sléttunni sem Hrafnista rekur en Reykjavíkurborg kemur að félagsstarfi þar. 

Það eru fulltrúar frá lögreglunni sem sjá um fræðslu um netsvik og heimilisofbeldi. Þá er Eva Lind Vestmann, félagsráðgjafi í málefnum eldra fólks, einnig á staðnum og veitir ráðgjöf og svarar spurningum. 

Allir fundirnir hafa verið verið vel sóttir og miklar umræður hafa skapast. Það er því greinilegt að umfjöllunarefnið er mörgu fólki hugleikið og mikil þörf fyrir samtal og fræðslu.

Næstu fundir verða á eftirfarandi stöðum: 

  • Árskógum 4, fimmtudaginn 26. mars, klukkan 10:00
  • Hvassaleiti 56–58, mánudaginn 30. mars, klukkan 13:00
  • Bólstaðarhlíð 43, þriðjudaginn 31. mars, klukkan 10:00
  • Hæðargarði 31, þriðjudaginn 31. mars, klukkan 13:00

Þau sem þarfnast frekari fræðslu eða upplýsinga geta haft samband við 112 eða https://www.112.is/.

Einnig er hægt að fá samband við ráðgjafa í málefnum eldra fólks hjá Reykjavíkurborg.