Fjölbreyttir viðburðir í Grasagarðinum

Viðburðirnir í Grasagarðinum eru ókeypis. Sjáumst í garðinum!
Loftmynd af Grasagarðinum

Viðburðadagskrá Grasagarðs Reykjavíkur 2026 er komin út og ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi. Viðburðirnir eru fjölbreyttir fyrir alla aldurshópa, allt frá fjölskylduvænum listasmiðjum, fuglaskoðun og lífveruleit til fræðslugangna um plöntur, mat, bragð, sögu, lífríki og plöntuvisku.

Einnig verða í sumar vikulegar hádegisgöngur á íslensku og ensku með margvíslegum umfjöllunarefnum þar sem gestir geta fræðst um allt frá náttúru og sögu svæðisins til ræktunar og vistfræði. Viðburðabæklingurinn liggur frammi í garðskála Grasagarðsins. 

Viðburðirnir í Grasagarðinum eru ókeypis. 

Sjáumst í garðinum!

Myndir af blómum og texti.