Fjölbreytt námskeið og sumarstarf fyrir börn og unglinga
Börn og unglingar í Reykjavík hafa úr miklu að velja í sumar en boðið verður upp á fjölbreytt frístunda- og sumarstarf víðs vegar um borgina.
Skráning í sumarstarf frístundaheimila og sértækt félagsmiðstöðvastarf Reykjavíkurborgar fer fram á sumar.fristund.is. Skráning í annað sumarstarf borgarinnar fer fram í Abler-appinu eða á vefnum abler.io. Athygli er vakin á því að rafræn skilríki eru nauðsynleg við skráningu.
Skráning hefst:
- Í sumarstarf frístundaheimila (1.–4. bekkur) þriðjudaginn 28. apríl kl. 10:00
- Í sértækt félagsmiðstöðvastarf (5.–10. bekkur) þriðjudaginn 28. apríl kl. 10:00
- Í sumarnámskeið Listasafns (1.–7. bekkur) þriðjudaginn 28. apríl kl. 11:00
- Í skapandi námskeið í Viðey (2. og 3. bekkur) þriðjudaginn 28. apríl kl. 11:00
- Á siglinganámskeið í Siglunesi (3.–6. bekkur) þriðjudaginn 28. apríl 12:00
- Sumarsmiðjur Borgarbókasafnsins (3.–10. bekkur) 28. apríl kl. 13:00
- Á dýranámskeið í Húsdýragarðinum (4.–6. bekkur) þriðjudaginn 28. apríl kl. 14:00
- Í sumarsmiðjur félagsmiðstöðva (5.–7. bekkur) þriðjudaginn 5. maí kl. 10:00
Vegna takmarkaðs pláss er foreldrum bent á að skrá börn tímanlega. Við skráningu í frístundaheimili og sértækar félagsmiðstöðvar fara öll börn á biðlista en umsóknum er sinnt eins fljótt og auðið er.
Skráning í sumarstarf frístundaheimilanna, sértækt félagsmiðstöðvastarf, dýranámskeið, siglinganámskeið, Viðey Friðey og námskeið Listasafns þarf að fara fram fyrir kl. 12:00 á fimmtudegi eigi barn að byrja næsta mánudag á eftir.
Opnunartími og forgangur
Frístundaheimili og sértækar félagsmiðstöðvar eru opin kl. 8:30–16:30 yfir sumarið. Börn í viðkomandi grunnskóla hafa forgang í frístundaheimili sem starfar við skólann. Félagsmiðstöðvar fyrir unglinga verða einnig opnar yfir sumarið og opnunartími auglýstur sérstaklega.
Foreldrar barna sem hafa flutt til landsins á síðustu 12 mánuðum, eru með annað móðurmál en íslensku og ekki fædd á Íslandi, geta sótt um tímabundna undanþágu frá gjöldum í sumarstarfi frístundaheimila og félagsmiðstöðva í allt að þrjár vikur, að uppfylltum skilyrðum.
Þá býður Vinnuskóli Reykjavíkur nemendum í 8.–10. bekk upp á sumarstörf. Skráning fer fram á vef Reykjavíkurborgar, þar sem einnig má finna nánari upplýsingar.
Nýr frístundavefur fyrir allt höfuðborgarsvæðið
Á nýjum þjónustuvef, fristund.is, má finna allar helstu upplýsingar um sumarstarf á einum stað til að einfalda leit að íþrótta- og tómsundastarfi. Þessi nýi þjónustuvefur á að auðvelda foreldrum og forráðamönnum að finna frístundastarf fyrir börn og ungmenni á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Þar er allt framboð aðgengilegt á einum stað, flokkað eftir aldri og staðsetningu, með einfaldri leit og reglulega uppfærðum upplýsingum. Vefurinn er samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og veitir yfirsýn yfir frístundastarf þvert á sveitarfélagamörk.
Frekari upplýsingar og aðstoð við skráningu veitir þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411 1111, í netspjalli á reykjavik.is eða með tölvupósti á upplysingar@reykjavik.is. Skráning í sumarstarf hjá öðrum aðilum fer fram hjá viðkomandi félagi eða skipuleggjanda.