Byggingarréttur í Suðurhólum og Hraunbergi
Reykjavíkurborg leitar eftir kauptilboðum á byggingarrétti á tveimur íbúðarhúsalóðum í Breiðholti.
Annars vegar er um að ræða byggingarrétt á lóðinni Suðurhólar 27, þar sem gert er ráð fyrir raðhúsi og sérhæðum á tveimur til þremur hæðum með allt að 40 íbúðum. Við Suðurhóla, er lögð áhersla á vandaðan arkitektúr, grænt yfirbragð og gæði íbúða en einnig er unnið vel með landslaginu og formi þess. Byggðin verður aðlögunarhæf þar sem íbúar geta mótað íbúðirnar og stækkað eftir þörfum. Vistgata mun liðast um svæðið sem skilur eftir grænt og barnvænt umhverfi á meginþorra svæðisins.
Hins vegar er um að ræða lóðina Hraunberg 1, þar sem gert er ráð fyrir tveimur íbúðakjörnum. Annars vegar einn með 4-6 íbúðum og hins vegar annar með 12-16 íbúðum með þjónustu-, verslunar- eða samfélagsrými ásamt bílastæðum á jarðhæð.
Nánari upplýsingar um lóðina og útboðsskilmála er að finna í úthlutunar- og útboðsskilmálum sem birtir eru á útboðsvef Reykjavíkurborgar. Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á útboðsvef eigi síðar en kl. 12.00, föstudaginn 9. október 2026.
Fyrirspurnum verður svarað á útboðsvef og niðurstöður útboða verða birtar þar og á slóðinni https://reykjavik.is/athafnalif.
- Úboðsvefur: Suðurhólar og Hraunberg
- Athafnalíf - auglýsing