Bætt starfsumhverfi leikskóla og gjaldfrjáls 36 tíma vistun
Leikskólaleiðin í Reykjavík var til umfjöllunar á fundi borgarráðs í morgun og var málinu vísað til fundar borgarstjórnar sem hefst klukkan 12:00 í dag.
Leikskólaleiðin í Reykjavík felur í sér umtalsverðar breytingar á gjaldskrá fyrir leikskóla sem ætlað er að auka stöðugleika og bæta starfsumhverfi. Boðið verður upp á 36 tíma gjaldfrjálsa vistun, hóflegt gjald fyrir 38 tíma vistun og aukinn afslátt fyrir einstæða forelda og tekjulágar fjölskyldur. Þá verður lögð áhersla á að styrkja faglegt starf og efla íslenskukunnáttu starfsfólks.
Fylgjast má með umræðum um málið í borgarstjórn í beinni.
Tillögurnar byggja á víðtæku samráðsferli við foreldra, starfsfólk, leikskólastjórnendur og verkalýðsfélög. Þá var unnið úr tæplega 200 umsögnum sem bárust í gegnum samráðsgáttina.
Markmið breytinganna er að hlúa að og auka stöðugleika í leikskólakerfinu í Reykjavík með því að bæta aðstæður fyrir starfsfólk leikskóla, styrkja faglegt starf og standa vörð um sanngjarna gjaldskrá. Stefnt er að því að ný gjaldskrá taki gildi 1. apríl.
36 tíma gjaldfrjáls vistun
Ein af stærstu breytingunum er að boðið verður upp á 36 tíma gjaldfrjálsa leikskóladvöl á viku. Foreldrar greiða eingöngu fyrir fæði ef dvalartíminn er innan þessara marka. Þetta getur verið verulegur ávinningur fyrir stóran hóp foreldra og lækkað gjöld hjá mörgum fjölskyldum.
Hóflegt gjald fyrir 38 tíma vistun
Gjald fyrir 38 tíma vistun verður mjög hóflegt, aðeins 7.000 krónur á mánuði, auk fæðisgjalds. Þetta er umtalsvert lægra en í fyrri tillögum og var tekið sérstaklega tillit til athugasemda foreldra í samráði.
Aukin aðstoð við einstæða foreldra og tekjulágar fjölskyldur
Nýir afsláttarflokkar eru settir inn fyrir þau sem þurfa lengri vistun og eru sérstaklega hannaðir til að styðja einstæða foreldra og tekjulág heimili. Með þessu er brugðist við helstu ábendingum sem bárust í samráðinu.
Ekki er dregið úr þjónustu
Hámarksdvalartími helst óbreyttur – allt að 42,5 klukkustundir á viku – og engar breytingar eru gerðar á heildarfjölda leikskólaplássa. Þetta þýðir að fjölskyldur sem þurfa lengri vistun hafa áfram þann möguleika.
Bætt starfsumhverfi og meiri stöðugleiki
Markmið breytinganna er að bæta starfsaðstæður og stöðugleika í leikskólum. Á undanförnum árum hafa sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu stytt dvalartíma barna og samkeppni um starfsfólk hefur leitt til áskorana í Reykjavík.
Með nýrri leikskólaleið er stefnt að því að:
- Draga úr fáliðun
- Auka fyrirsjáanleika
- Efla faglegt starf
- Tryggja stöðugri mönnun yfir árið
Leitast er eftir samstarfi við foreldra um að skrá einungis þann dvalartíma sem raunveruleg þörf er fyrir. Gögn sýna að foreldrar greiða í dag fyrir að jafnaði um 10% lengri vistun en þau nýta sem kallar á fleira starfsfólk á ákveðnum tímum dags en þörf er á.
Systkinasameining styrkt
Tillögurnar gera ráð fyrir að systkinasameining verði viðhöfð að ákveðnum skilyrðum uppfylltum í stóru innrituninni sem fer að mestu fram í mars. Í skilyrðum felst meðal annars að leikskóli þar sem systkini eru með vistun sé í fyrsta vali, að eldra systkini eigi eftir að vera áfram í leikskólanum að lágmarki í sex mánuði og að systkini séu með sama fjölskyldunúmer í þjóðskrá.
Aukinn stuðningur við starfsfólk með annað móðurmál en íslensku
Lagt verður upp með fjölbreyttar aðgerðir til að efla íslenskukunnáttu starfsfólks af erlendum uppruna og styrkja íslenskt málumhverfi barna í leikskólum. Markmiðið er að stuðla að betri samskiptum, skýrum leiðbeiningum og sterkari faglegri heild.
Nýtt umsjónarfólk leikskólahúsnæðis
Til að tryggja betra húsnæðisöryggi verða búin til ný stöðugildi fyrir umsjónarfólk leikskólahúsnæðis sem munu sjá um minniháttar viðhald og daglegan rekstur húsnæðis. Með þessu er einnig verið að draga verulega úr verkefnum tengdum umsjón húsnæðis frá stjórnendum leikskóla.
Skráningardagar tvisvar á ári
Til að tryggja rétta skráningu og bæta skipulag mönnunar mun foreldrum verða boðið að skrá vistun barna á frídögum tvisvar á ári:
- 10.–20. september (fyrir daga fram að áramótum)
- 10.–20. janúar (fyrir vorönn)
Gjald fyrir hvern skráningardag verður 5.000 krónur og er í samræmi við gjald í frístund þessa daga. Þá verða leikskólar lokaðir annan daginn í febrúar þegar vetrarfrí grunnskóla stendur yfir. Aðgerðin er fyrsta skrefið í að sameina skipulag og skóladagatöl leikskóla og grunnskóla.
Jafnréttismat: Verulega lægri gjöld fyrir stóran hóp
Samkvæmt jafnréttismati liggur fyrir að ný gjaldskrá leiðir til verulegra lækkana fyrir stóran hóp foreldra. Hækkunin snertir fyrst og fremst lengstu vistunartímana og tekjuhærri foreldra. Ekki kemur fram að breytingarnar hafi verulega neikvæð kynjuð áhrif en lagt er upp með að fylgjast grannt með áhrifum á verkaskiptingu heimila.