Allir starfsstaðir menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkur hafa hlotið Regnbogavottun

Róbert Reynisson
Regnbogafáninn og Reykjavíkurfáni hanga inni í Sundhöllinni, stökkbrettið og laugin sjálf í bakgrunni

Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur fagnar þeim áfanga að allir starfsstaðir sviðsins hafa nú hlotið Regnbogavottun Reykjavíkurborgar. Þar með eru allar sundlaugar borgarinnar, öll söfn Borgarbókasafnsins, Listasafns Reykjavíkur og Borgarsögusafns, auk annarra starfsstaða sviðsins, komin með vottunina.

Regnbogavottun Reykjavíkurborgar er ætlað að stuðla að aukinni þekkingu og meðvitund um málefni hinsegin fólks og tryggja að þjónusta og starfsumhverfi séu inngildandi, örugg og fordómalaus fyrir alla. Síðan verkefnið hófst árið 2020 hafa um 150 vinnustaðir hlotið vottunina, sem hefur alla tíð verið eftirsótt og skilað sér í betri þjónustu og öruggari vinnustöðum fyrir starfsfólk og íbúa.

Menningar- og íþróttasvið var meðal fyrstu sviða Reykjavíkurborgar til að taka þátt í verkefninu og voru sex starfsstaðir þess þeir fyrstu í borginni til að hljóta Regnbogavottun. Það voru Vesturbæjarlaug, Ylströndin, Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, skrifstofa sviðsins, Breiðholtslaug og Borgarbókasafnið Gerðubergi.

„Það er mikið fagnaðarefni að allir starfsstaðir Menningar- og íþróttasviðs séu komnir með Regnbogavottun, enda veita þau mikilvæga þjónustu fyrir íbúa borgarinnar sem tekur nú mið af þörfum hinsegin fólks og áskorunum sem það þarf oft að glíma við.,“ segir Uglu S. Kristjönudóttur Jónsdóttir, sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks á mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur.

Menningar- og íþróttasvið er stolt af þessum árangri og þeirri samstilltu vinnu starfsfólks sem liggur að baki því að allir starfsstaðir sviðsins hafi nú hlotið Regnbogavottun.