Styrkir - myndrík miðlun um sögu Reykjavíkur - umsóknir óskast

1935-1937, múrarar að hlaða upp veggi og flísaleggja í búningsklefum Sundhallar Reykjavíkur. Ljósmynd Óskar Gíslason 1901-1990
1935-1937, múrarar að hlaða upp veggi og flísaleggja í búningsklefum Sundhallar Reykjavíkur. Ljósmynd Óskar Gíslason

Auglýst er eftir umsóknum um styrki fyrir myndríka miðlun um sögu Reykjavíkur.

Ert þú með bók, kvikmynd, sjónvarpsefni, vefsíðu eða aðra miðlun í undirbúningi sem tengist sögu Reykjavíkur og hyggst nota ljósmyndir Ljósmyndasafns Reykjavíkur í verkefninu? Þá getur þú sótt um styrk til Reykjavíkurborgar vegna kaupanna. Styrkurinn felst í niðurgreiðslu á kostnaði vegna myndbirtinga. 

Rithöfundar, útgefendur og aðrir sem hyggja á myndríka miðlun á árinu 2025 eða í ársbyrjun 2026 um efni sem tengist sögu Reykjavíkur geta sótt um styrkinn. Styrkurinn er í formi inneignar til kaupa á ljósmyndum til birtingar frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur, að hluta eða heild.

Markmið styrkveitingarinnar er stuðla að öflugri miðlun menningararfleifðar Reykjavíkur og sögu hennar. Hópur skipaður þremur sérfræðingum á menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar fer yfir umsóknir og gerir tillögu til menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs um val á umsækjendum.

Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins 22. maí 2025.

Í umsókn um styrk til myndríkrar miðlunar þurfa að koma fram upplýsingar um umsækjanda ásamt lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu. Einnig skal fylgja verðáætlun Ljósmyndasafns Reykjavíkur vegna fyrirhugaðra kaupa á ljósmyndum sem bera birtingagjald skv. gjaldskrá safnsins. Sótt er um styrkinn á Mínum síðum Reykjavíkurborgar.

Styrkir fyrir myndræna miðlun