Reykjavíkurborg tekur þátt í Stóra plokkdeginum sem haldinn verður sunnudaginn 27. apríl. Hún hvetur borgarbúa til að taka höndum saman og tína rusl í nærumhverfi sínu. Tveir bílar verða á ferðinni til að safna pokum og gott er að nota ábendingarvefinn til að láta vita um staðsetningar.
Starfsfólk hverfastöðva borgarlandsins verða á vaktinni og tína upp poka sem plokkarar láta vita af á plokk-síðum eða ábendingarvef. Á laugardag og sunnudag verða tveir bílar á ferðinni frá borginni til að grípa poka.
Þau sem vantar poka til að tína í geta sótt þá á hverfastöðvar borgarinnar. Húsfélög eða hópar sem ætla að skipuleggja plokk-viðburð geta náð sér í poka á hverfabækistöðvar. Gott er að vera með hanska og í áberandi vestum ef plokkað er meðfram vegum eða götum.
Hverfastöðin á Kjalarnesi tekur á móti pokum kl. 10-16 á sunndag. Hverfastöðvar í Jafnaseli og á Fiskislóð verða opnar kl. 10-16 á laugardag og kl. 10-18 á sunnudag.
Plokkum saman
Gott er fara með pokana á endurvinnslustöðvar Sorpu en hægt verður að fara með óflokkað í ólituðum pokum þangað um helgina. Rótarýhreyfingin á Íslandi skipuleggur daginn fyrir hönd Plokk á Íslandi.
Tenglar
- Ábendingavefur Reykjavíkurborgar
- Sorpa endurvinnslustöðvar
- Plokk á Íslandi - vefsíða
- Facebook - Stóri-plokkdagurinn, facebook - plokk á Íslandi
- Hverfamiðstöðin Jafnaseli opin kl. 10-16 laugardag og kl. 10-18 sunnudag
- Hverfamiðstöð Fiskislóð - opin kl. 10-16 laugardag og kl. 10-18 sunnudag
- Hverfamiðstöð Kjalarnes opin á sunnudag kl. 10-16