Öryggi og aðgengi við vinnusvæði mælt á Hlemmi

Hlemmur - hugað að öryggi vegfarenda við framkvæmdasvæði

Miklar breytingar eru að verða á Hlemmi og í tengslum við þær framkvæmdir hafa verið gerðar mælingar til að skoða öryggi og aðgengi að vinnusvæðum.  Nú í vikunni verður komið fyrir tveimur skynjurum til að mæla umferð fólks og farartækja. Áhersla í mælingum er að greina hættur í blandaðri umferð.

Notaðir eru snjallmælar til að greina hreyfingar og flæði umferðar. Mælitækin hafa fengið alþjóðlega vottun og er gætt að allri gagnavernd og persónurekjanlegum upplýsingum. 

Evrópskt samstarfsverkefni

Mælingarnar eru hluti af evrópsku samstarfsverkefni sem Reykjavík er þátttakandi í. Verkefnið felst í að horfa á öryggi og upplifun í opinberu rými og jafnframt hvernig megi útfæra öruggar, ódýrar og sjálfbærar lausnir sem skilja engan útundan (t.d. aldraða, fatlaða og ungmenni).  Heiti verkefnisins er AMIGOS, en það er stytting á „Active Mobility Innovations for Green and safe city sOlutionS“ og taka 28 aðilar víða í Evrópu þátt. 

Viðfangsefnið hérlendis er öryggi og aðgengi á vinnusvæðum og umbreytingar við Hlemm og er stefnt á að lærdóm megi draga sem gagnast öðrum verkefnum. Gagnasöfnun er mikilvægur liður í þessari vinnu og þar er horft til gagna s.s. um slysatíðni, mengun og hávaða, og gera reglulegar mælingar á fjölda bifreiða, hjólandi og gangandi vegfarenda á svæðinu. 

Gagnreynd mælitæki

Mælitækin sem sett hafa verið upp á Hlemmi eru nú þegar notuð í rannsóknarskyni víða um Evrópu með áherslu á að greina helstu hættur í blandaðri umferð þar sem ferðir fólks og farartækja af ólíkum toga skarast.

MOB (Mobility Observation Box) er mælitæki þróað af Austrian Institute of Technology (AIT).  Tækið hefur hlotið jákvæða umfjöllun gagnaverndareftirlitsins í Austurríki sem starfar á sama grunni og Persónuvernd hérlendis, þ.e., að tryggja að Evrópsku gagnaverndarlöggjöfinni sé fylgt sem og viðeigandi lögum í heimalandinu.

Helstu viðmiðanir við notkun tækisins snúa að skýrum tilgangi gagnasöfnunar í vísindaskyni, þ.e., við rannsóknir á vörnum gegn umferðarslysum og þar með í þágu almannahagsmuna. Meginreglum er fylgt um gagnamagn og meðalhóf til að ná því markmiði, t.d., er myndefni allt úr fókus og mælingarnar aðeins gerðar í 7-14 daga í einu.

Öryggi gagnanna er markvisst tryggt. Allur gagnastraumur er dulkóðaður við söfnun og ekki tekinn til vinnslu fyrr en rannsóknarstofa AIT fær tækið i hendurnar. Einnig er tryggt að frumgögn séu ekki notuð í öðrum tilgangi en stendur til vegna framvindu AMIGOS, þar með talin eru tímamörk sem sett eru á varðveislu þegar söfnun og greiningu er lokið. 

Reykjavíkurborg leitast við að tryggja í hvívetna áreiðanleika, trúnað og öryggi allra persónuupplýsinga sem borgin vinnur með, sbr. Persónuverndarstefnu Reykjavíkurborgar.

Haustið 2023 var fyrsta gagnasöfnun með þessum tækjum, og nú á meðan á framkvæmdum stendur verður mælt bæði umferð kringum framkvæmdasvæðin og umferð á tilbúnum hlutum Hlemms. Mælingar við Hlemm standa yfir frá og með 21. október til og með 6. nóvember 2025.

MOB var nýlega verðlaunað fyrir mikilvægi þess í rannsóknum AIT stofnunarinnar á umferðaröryggi.

Tengiliður hjá Reykjavíkurborg er Hannah Rós Sigurðardóttir Tobin, netfang: hannah.ros.sigurdardottir.tobin@reykjavik.is

Nánari upplýsingar