
Opnað verður fyrir umsóknir Reykvíkinga um matjurtagarða í borginni þann 15. mars. Um 600 matjurtagarðar eru leigðir út á vegum borgarinnar, þar af eru tæplega 200 í Skammadal. Matjurtagarðarnir eru í boði í Vesturbæ, Fossvogi, Laugardal, Árbæ, Grafarvogi og Kjalarnesi við Fólkvang. Matjurtagarðarnir verða opnaðir 1. maí.
Garðarnir verða merktir. Vatn er aðgengilegt á öllum svæðum. Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með görðunum. Fyrir byrjendur má geta þess að algengast er að fólk rækti kartöflur og alls konar kál og rófur. Einnig er gott að hafa í huga að hægt er að nálgast forræktað grænmeti í allflestum gróðrastöðvum.
Leigugjöld ársins 2025 eru 7.500 krónur fyrir garðland í Skammadal (um 100 fermetrar) og 6.200 krónur fyrir garð (um 20 fermetrar). Kassar í Grafarvogi, Árbæ, Fossvogi og Kjalarnesi verða á 5.000 krónur kassinn (8 fermetrar). Úthlutun garða verður afturkölluð hafi greiðsla ekki borist á eindaga.
Umsóknir sendist á netfangið matjurtagardar@reykjavik.is.
Ókeypis fræðsla hjá Reykjavíkurborg
Í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal er boðið upp á ýmsa fræðslu eins og í hádegisgöngunum sem eru alla föstudaga í júní, júlí og ágúst. Þær taka hálftíma og eru klukkan 12:00 á íslensku og 12:40 á ensku. Þær eru líka kjörið tækifæri til að spyrja starfsfólk garðsins um matjurtaræktun.
Börnum og fjölskyldum þeirra býðst að koma í garðskála Grasagarðsins og læra að sá fyrir sumarblómum og matjurtum miðvikudaginn 9. apríl klukkan 17-18. Þetta er liður í barnamenningarhátíð. Þá læra krakkarnir (og fullorðnir líka) að dreifplanta eða prikla smáplöntum. Þátttakendur fá svo að taka plönturnar sínar með heim í lok viðburðar.
Kenndar verða brýningar og umhirða verkfæra miðvikudaginn 7. maí klukkan 17-18. Fólk mætir með eigin verkfæri. Starfsfólk Grasagarðsins kennir handtökin við brýningar á klippum, kantskerum, skóflum og fleiru. Þá verður farið yfir hvernig eigi að geyma verkfærin svo þau endist sem lengst.
Þátttaka í þessum viðburðum er ókeypis og öll velkomin.