Námskeið og sumarstarf fyrir börn og unglinga

Íþróttir og útivist Menning og listir

Mynd af siglinganámskeið

Í sumar verður fjölbreytt framboð af afþreyingu og fræðslu fyrir börn og unglinga í Reykjavík.

Skráning í sumarstarf á vegum Reykjavíkurborgar fer fram á vefnum í gegnum Völu frístund. Athugið að við skráningu þarf að nota rafræn skilríki.

Skráning hefst:

  • Í sumarstarf frístundaheimila (1.–4. bekkur) þriðjudaginn 29. apríl kl. 10:00 
  • Í sértækt félagsmiðstöðvastarf (5.–10. bekkur) þriðjudaginn 29. apríl kl. 10:00 
  • Í sumarnámskeið Listasafns (1.–7. bekkur) þriðjudaginn 29. apríl kl. 11:00
  • Í skapandi námskeið í Viðey (2. og 3. bekkur) þriðjudaginn 29. apríl kl. 11:00 
  • Á siglinganámskeið í Siglunesi (3.–6. bekkur) þriðjudaginn 29. apríl 12:00
  • Sumarsmiðjur Borgarbókasafnsins (3.–10. bekkur) 29. apríl kl. 13:00 
  • Á dýranámskeið í Húsdýragarðinum (4.–6. bekkur) þriðjudaginn 29. apríl kl. 14:00
  • Í sumarsmiðjur félagsmiðstöðva (5.–7. bekkur) þriðjudaginn 6. maí kl. 10:00

Margt spennandi í boði

Skráning í sumarstarf frístundaheimilanna, sértækt félagsmiðstöðvastarf, dýranámskeið, siglinganámskeið, Viðey Friðey og námskeið Listasafns þarf að fara fram fyrir kl. 12:00 á fimmtudegi eigi barn að byrja næsta mánudag á eftir. Foreldrum er bent á að sækja um tímanlega þar sem takmarkaður fjöldi plássa er í boði. Við skráningu fara öll börn á biðlista, en umsóknir verða afgreiddar eins fljótt og hægt er.

Opnunartími frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva á sumrin er kl. 8:30-16:30. Börn sem skráð eru í viðkomandi grunnskóla hafa forgang á það frístundaheimili sem starfar við skólann. Opið verður í félagsmiðstöðvum fyrir unglinga í sumar, opnunartími verður auglýstur á heimasíðum þeirra. 

Foreldrar barna sem flutt hafa til landsins á síðustu tólf mánuðum, eru ekki fædd á Íslandi og eru með annað móðurmál en íslensku geta fengið undanþágu frá greiðslu gjalda í sumarstarf frístundaheimila og félagsmiðstöðva í þrjár vikur gegn umsókn þar um. Athugið að þetta gildir aðeins ef það eru laus pláss þá viku eða vikur sem sótt er um og þarf einnig að skrá börnin á Völu frístund.

Vinnuskóli Reykjavíkur býður nemendum í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla upp á sumarstörf. Foreldrar skrá sína unglinga á vef Vinnuskólans og þar má jafnframt finna nánari upplýsingar um starfið.

Frekari upplýsingar og aðstoð við skráningu er hægt að fá hjá þjónustuveri Reykjavíkurborgar í upplysingar@reykjavik.is, í netspjalli eða í síma 411-1111. Skráning í sumarstarf hjá öðrum en Reykjavíkurborg fer fram hjá viðkomandi félagi/aðila.

Reykjavík hefur opnað nýjan frístundavef með öllu framboði frístundastarfs fyrir börn og ungmenni á einum og sama staðnum. Vefurinn er í þróun en er nú aðgengilegur öllum á beta.fristund.is.