Hverfissjóður Reykjavíkurborgar- vilt þú sækja um?

Róbert Reynisson
Loftmynd yfir eitt af hverfum Reykjavíkur, tré í forgrunni, sumar

Opnað verður fyrir umsóknir í hverfissjóð Reykjavíkurborgar mánudaginn 15. september og er umsóknarfresturinn til 15. október næstkomandi.

Tilgangur hverfissjóðs er að efla félagsauð, samstöðu og samvinnu íbúa í hverfum borgarinnar, stuðla að fegrun hverfa, auka öryggi og auðga mannlíf með fjölbreyttum hætti með mið af þörfum íbúa.

Sjóðurinn styrkir þau sem vilja leggja sitt af mörkum og standa fyrir hverfistengdum verkefnum og/eða viðburðum. Lögð er áhersla á að styrkja verkefni sem nýtast sem flestum íbúum hverfanna, stuðla að þátttöku fjölbreyttra hópa í mannlífi þeirra eða miða að fegrun eða uppbyggingu svæða sem nýtast stórum hluta íbúa.

Upplýsingar um hverfissjóð og umsóknareyðublað