Hver verður Reykvíkingur ársins 2025 – ábendingar óskast

Borgarstjórinn í Reykjavík óskar í fimmtánda sinn eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking sem verið hefur öðrum til fyrirmyndar í borgarsamfélaginu. Ábendingarnar verða notaðar til að velja Reykvíking ársins.
Reykvíkingur ársins hefur verið útnefndur árlega frá árinu 2011. Til greina koma aðeins einstaklingar, sem hafa verið til fyrirmyndar eða sýnt af sér háttsemi eða atferli sem kemur Reykjavík og íbúum borgarinnar til góða á einhvern hátt.
Þetta gæti verið einhver sem hefur haft jákvæð áhrif á borgarlífið, sýnt nærumhverfinu alúð eða gert mikið gagn í borginni á undanförnum árum með einhverjum hætti.
Hann, hún eða hán sem hlýtur viðurkenningu sem Reykvíkingur ársins opnar Elliðaárnar með því að renna fyrir laxi í ánni ásamt borgarstjóra, í boði Stangveiðifélags Reykjavíkur sem hefur árnar á leigu.
Reykvíkingur ársins 2024 var Marta Wieczorek, sem er kennari við Hólabrekkuskóla og fékk viðurkenninguna fyrir að vinna dýrmætt og óeigingjarnt starf í þágu barna borginni. Hún hefur jafnframt unnið ötullega að eflingu móðurmálskennslu í Pólska skólanum í Reykjavík, sem var stofnaður árið 2008, þar sem lögð er áhersla á pólskukennslu samhliða því að veita mikilvægan stuðning fyrir tvítyngda nemendur á Íslandi. Marta kennir einnig á íslenskunámskeiði fyrir börn sem eru nýkomin til Reykjavíkur.
Ábendingar um einstaklinga eru vel þegnar og ber að senda þær inn ásamt rökstuðningi um það hvers vegna viðkomandi einstaklingur á heiðurinn skilinn á netfangið hugmynd@reykjavik.is.
Frestur til að senda inn tilnefningar rennur út mánudaginn 9. júní 2025.
Þriggja manna dómnefnd velur Reykvíking ársins úr innsendum tillögum.