Hálka og mögulega asahláka um helgina
Vakin er athygli á að spáð er hlýnandi veðri og rigningu næstu daga með mögulegri asahláku.
Þetta þýðir að hætta getur skapast vegna hálku og leysinga á götum, stígum og lóðum, sérstaklega þegar klaki og snjór bráðna hratt.
Íbúar borgarinnar eru beðnir um að ganga úr skugga um að niðurföll við heimili sitt séu opin og laus við klaka og snjó, til að tryggja eðlilegt frárennsli og koma þannig í veg fyrir vatnstjón.
Niðurföll í Borgarvefsjá
Í Borgarvefsjá er hægt að sjá hvar niðurföll í götum eru staðsett (ekki inni á lóðum). Hægt er að finna niðurföll með því að slá inn heimilisfang í leitargluggann efst til hægri. Þá birtast fráveitulagnir, niðurföll og fleira.
Hægt er að þysja inn á kortið með því að nota hjólið á músinni eða nota plús og mínus hnappana sem eru fyrir neðan leitargluggann.