Allar átta sundlaugar Reykjavíkurborgar hafa hlotið regnbogavottun

Mannlíf Mannréttindi

Sundhöll Reykjavíkur innanhúss. Mynd sýnir stóra laugarkarið, háa stökkbrettið lengst til hægri. Áberandi í forgrunni er fáni borgarinnar og stærri fáni, hinseginfáninn (sá gamli)

Það eru gleðitíðindi að allar átta sundlaugar Reykjavíkur hafa hlotið regnbogavottun. Markmið regnbogavottunar er að gera starfsemi Reykjavíkurborgar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega og þannig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks.

Ferlið felur í sér:

  1. Spurningalista um starfsstaðinn.
  2. Fræðslu fyrir allt starfsfólk um hinsegin málefni. 
  3. Úttekt á starfsumhverfinu, útgefnu efni og fleiru eftir atvikum.
  4. Að starfsfólk útbúi aðgerðaáætlun fyrir starfsstaðinn í hinsegin málum, áætlunina skal uppfæra á árs fresti og skila inn.
  5. Lógó og plakat (þegar starfsstaður öðlast regnbogavottun) og endurgjöf.

Nú eru sérklefar aðgengilegir í sjö af átta sundlaugum og til stendur að bæta við klefa í Klébergslaug. Markmiðið er að hafa sérklefa í öllum sundlaugunum.

Sérklefar eru sérstaklega ætlaðir til að taka vel á móti trans fólki (og börnum), þar með talið kynsegin og intersex fólki (og börnum), foreldrum fatlaðra barna og barna sem þurfa sérstaka aðstoð og eru af öðru kyni, fötluðu fólki með aðstoðarmann af öðru kyni, börnum að aðstoða foreldra sem eru af öðru kyni og fólki með heilsufarsvanda, svo sem stóma. 

Á vef Reykjavíkurborgar er að finna nánari upplýsingar um aðgengi hjá hverri laug og myndbönd sem sýna aðgengi að sérklefum.

Meira um regnbogavottun.