Lokanir gatna á áramótum

Samgöngur Umhverfi

Ragnar Th. Sigurðsson
Hallgrímskirkja á áramótum. Kirkjan til hægri í mynd, flugeldar að springa, mannfjöldi um allt

Lokað verður fyrir akandi umferð á Skólavörðuholti frá klukkan 22.00 – 01.00 á gamlárskvöld. Þá verða lokanir á nokkrum götum á gamlársdag vegna Gamlárshlaups ÍR.

Götulokanir verða á Skólavörðuholti á gamlárskvöld frá klukkan 22 til klukkan eitt eftir miðnætti. Markmiðið er að afmarka skotsvæði fyrir flugelda og tryggja öryggi fólks á svæðinu. Komið verður fyrir tryggum undirstöðum undir flugeldaskot og skotsvæðið afmarkað með keilum og borðum auk þess sem gæslufólk verður við störf. Starfsfólk Reykjavíkurborgar mun sjá um lokanir gatna og frágang eftir miðnætti.

Nánari upplýsingar um lokanir á Skólavörðuholti og kort af þeim.

Grafískt kort sem sýnir lokanir á gamlárskvöld á Skólavörðuholti

Lokanir á Skólavörðuholti á gamlárskvöld.

Hlaupið á gamlársdag í nær hálfa öld

Gamlárshlaup ÍR fer fram í 47. sinn á gamlársdag og hlaupinu fylgja götulokanir. Hlaupaleiðin er sú sama og undanfarin ár og verður rásmark á syðri akrein Sæbrautar fyrir framan Hörpu og endamark á planinu fyrir framan Hörpu. Hlaupið er ræst klukkan 12 og lýkur tímatöku kl. 13.30 en gert er ráð fyrir að Sæbraut verði lokuð frá klukkan 10.30 til 13.30. Skemmtihlaupið verður ræst 5-7 mínútum eftir ræsingu 10 kílómetra hlaupsins og hlaupið eftir sömu braut. Þrengt verður að umferð eða götum lokað eftir atvikum á meðan á hlaupinu stendur.

Nánari upplýsingar um lokanir vegna Gamlárshlaups ÍR og kort.

Gamlárshlaup ÍR á Fésbók.

Grafískt kort sem sýnir lokanir vegna Gamlárshlaups ÍR 2024

Lokanir vegna Gamlárshlaups ÍR.