Áramótin í Reykjavík

Reykjavíkurborg ætlar að bjóða upp á gáma fyrir flugeldarusl á tíu grenndarstöðvum um alla borg. Alls verða haldnar tíu áramótabrennur í Reykjavík á gamlárskvöld. Mynd/Arctic Images - Ragnar Th.
Flugeldar. Loftmynd af Hallgrímskirkju og nágrenni.

Nokkrar líkur eru á svifryksmengun fyrstu klukkustundir ársins 2025 vegna mengunar frá flugeldum og búast má við því að styrkurinn verði yfir heilsuverndarmörkum. Svifryksmengun vegna flugelda er bæði varasöm og heilsuspillandi. Flugeldum fylgir líka rusl, sem þarf að koma á réttan stað. Reykjavíkurborg ætlar að bjóða upp á gáma fyrir flugeldarusl á tíu grenndarstöðvum um alla borg. Alls verða haldnar tíu áramótabrennur í Reykjavík á gamlárskvöld.

Fyrsti svifryksdagur ársins?

Á gamlársdagsmorgun er útlit fyrir hæga austanátt sunnan- og vestantil á landinu með engri úrkomi og miklu frosti. Talsverðar líkur eru því að loftgæði verði slæm eitthvað fram á nýársdag miðað við veðurspá. Nýársdagur 2025 gæti því orðið fyrsti svifryksdagur ársins vegna mengunar frá skoteldum. Heilsuverndarmörkin á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks á Loftgæði.is og nýjustu veðurspána má sjá á vef Veðurstofu Íslands.

Loftgæðamælistöðvar sem mæla svifryk í Reykjavík eru staðsettar við Grensásveg, Olís Álfabakka, í Laugarnesi og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. 

Fólk með viðkvæm öndunarfæri, hjarta- og æðasjúkdóma og börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir svifryki. Æskilegast er fyrir þennan hóp að vera innandyra þegar mest gengur á í kringum um miðnættið og loka gluggum.  

Tíu áramótabrennur

Tíu áramótabrennur verða í Reykjavík. Umsjón með þeim er ýmist á hendi borgarinnar eða félagasamtaka, sem huga vel að því sem sett er á brennurnar og tryggja að frágangur og vöktun sé í lagi. Fyrir hádegi á gamlársdag er veðurspá skoðuð og ákvörðun tekin um hvort það megi tendra um kvöldið. Brennur eru ekki tendraðar ef vindhraði fer yfir 10 m/s.

  • Við Ægisíðu, lítil brenna, klukkan 20:30.
  • Í Skerjafirði gegnt Skildinganesi 48-52, lítil brenna, klukkan 21:00.
  • Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð, lítil brenna, kl. 20:30.
  • Laugardalur, fyrir neðan Laugarásveg 18, lítil brenna, klukkan 20:30.
  • Geirsnef, á norðanverðu Geirsnefi, stór brenna, klukkan 20:30.
  • Við Stekkjarbakka, lítil brenna, klukkan 20:30.
  • Við Rauðavatn að norðanverðu, lítil brenna, klukkan 20:30.
  • Gufunes við Gufunesbæ, stór brenna, klukkan 20:30.
  • Við Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna, klukkan 20:30.
  • Úlfarsfell á athafnasvæði Fisfélagsins ofan við Lambhagaveg, lítil brenna klukkan 20:30.

Einnig er hægt að skoða staðsetningarnar í Borgarvefsjá. 

Vakin er athygli á því að óheimilt er að vera með flugelda og skotblys við brennur en leyfilegt að vera með stjörnuljós og blys önnur en skotblys. 

Gámar fyrir flugeldaleifar

Eftir áramótin má oft finna flugeldarusl víða um borg. Mikilvægt er að koma þessu rusli á sinn stað áður en það brotnar niður og verður að drullu. Þó svo að flugeldar séu úr pappa, þá er notaður leir í botninn sem gerir það að verkum að pappinn sem eftir verður er ekki hæfur til endurvinnslu. 

Reykjavíkurborg ætlar að bjóða upp á gáma fyrir flugeldarusl á tíu grenndarstöðum um alla borg. Gámarnir verða settir upp dagana fyrir gamlársdag svo þeir verða klárir til þess að taka á móti flugeldaruslinu á nýársdag. Frá og með 2. janúar verður tekið á móti flugeldaleifum á endurvinnslustöðvum Sorpu á hefðbundnum opnunartíma. Sem fyrr fara ósprungnir flugeldar í spilliefnagáma á endurvinnslustöðvum Sorpu.

Staðsetningarnar eru þessar en einnig er hægt að skoða þær í Borgarvefsjá:

  • Vesturbær – grenndarstöð við Hofsvallagötu (Vesturbæjarlaug)
  • Miðborg -  grenndarstöð Eiríksgötu (við Hallgrímskirkju)
  • Hlíðar - grenndarstöð við Flókagötu (Kjarvalstaði)
  • Laugardalur - grenndarstöð við Sundlaugaveg (Laugardalslaug)
  • Háaleiti-Bústaðir - grenndarstöð við Sogaveg
  • Breiðholt – grenndarstöð við Austurberg
  • Árbær/Selás – grenndarstöð við Selásbraut
  • Grafarvogur – grenndarstöð í Spöng
  • Grafarholt-Úlfarsárdalur – grenndarstöð Þjóðhildarstíg (við Krónuna)
  • Kjalarnes – við grenndarstöð

Sýnum aðgát og hugum að börnum og dýrum 

Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa til að sýna aðgát og huga að börnum og dýrum ásamt því að ganga rétt frá flugeldarusli. Hægt er að draga úr fjölda flugelda með því að kaupa rótarskot Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Rótarskotið er ágætur valkostur fyrir þá sem vilja styrkja starf björgunarsveitanna án þess að kaupa flugelda. Fyrir rótarskotin gróðursetur skógræktarfélagið trjáplöntur um land allt næsta sumar sem stuðlar að betri loftgæðum og dregur úr gróðurhúsaáhrifum.  

Flugeldanotkun almennings er mikil á Íslandi og hefur henni fylgt nokkur slysatíðni. Síðasta áratug hefur 21 einstaklingur slasast og einn hlotið varanlegt heilsutjón að meðaltali á hverju einasta ári vegna flugeldanotkunar á höfuðborgarsvæðinu. 

Hávaði vegna flugelda verður oft mikill, sérstaklega frá stórum skotkökum og því eru gæludýraeigendur í borginni hvattir til að huga vel að dýrum sínum. Best er að halda köttum inni dagana í kringum áramót og hafa hunda ávallt í ól þegar þeim er hleypt út, þó það sé aðeins út í garð.

Á undanförnum árum hafa verið flutt inn um 600 tonn af skoteldum á hverju ári og er árið í ár engin undantekning. Höfundar skýrslunnar Mengun af völdum skotelda skrifa meðal annars: „Starfshópurinn var sammála um að sú mengun sem oft verður um áramótin af völdum skotelda hefur óæskileg áhrif á heilsu margra einstaklinga, sérstaklega þeirra sem eru með undirliggjandi heilsufarsvandamál.“

Meginatriðið er því að fara gætilega um áramótin, passa börnin, nota hanska og hlífðargleraugu og njóta stundarinnar á öruggan hátt. Gleðilega hátíð!