Yfirlýsing borgarstjórnar í kjölfar skýrslu vöggustofunefndar
Borgarstjórn biður börn sem vistuð voru á Vöggustofunni Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins og fjölskyldur þeirra afsökunar á illri meðferð sem lýst var í skýrslu vöggustofunefndar. Ljóst er að vistun á Vöggustofum hefur í mörgum tilvikum haft afdrifarík áhrif á líf þeirra barna sem þar voru. Þetta er svartur blettur í sögu Reykjavíkurborgar.
Borgarstjórn vill þakka vöggustofunefndinni fyrir sérlega umfangsmikla, vel rannsakaða og rökstudda skýrslu. Borgarstjórn er einnig þakklát hvatamönnunum að því að rannsóknin var unnin, þeim Árna H. Kristjánssyni, Fjölni Geir Bragasyni, Hrafni Jökulssyni, Tómasi V. Albertssyni og Viðari Eggertssyni.
Borgarstjórn tekur heilshugar undir tillögur vöggustofunefndar sem fram koma í skýrslunni.
- Fyrsta tillagan lýtur að hugsanlegum skaðabótagreiðslum til þeirra sem vistaðir voru á vöggustofunum sem börn. Þau mál eru til meðferðar Alþingis.
- Önnur tillagan fjallar um geðheilbrigðis- og sálfræðiþjónustu til sömu einstaklinga og er til meðferðar hjá Reykjavíkurborg.
- Sú þriðja beinist að gildandi framkvæmd og eftirliti á sviði barnaverndarmála og er til umfjöllunar í velferðarráði og umdæmisráði barnaverndar.
- Fjórða og síðasta tillagan lýtur að því að borgarráð taki afstöðu til þess hvort rétt sé að framhald verði á athugun á vöggustofum í Reykjavík.
Eftirfylgni með tillögunum er þegar hafin.