Stýrir þróun og uppbyggingu á nýju úrræði fyrir heimilislausa karlmenn
Svala Jóhannesdóttir hefur bæst í öflugan hóp starfsfólks í málaflokki heimilislausra hjá Reykjavíkurborg en hún mun stýra tveimur búsetuúrræðum fyrir karlmenn sem hafa glímt við heimilisleysi. Svala hefur mikla reynslu úr störfum í málaflokki heimilislausra, innan borgarinnar, hjá Rauða krossinum og grasrótarsamtökum. Hún hefur meðal annars stýrt neyðarskýlum fyrir konur, Frú Ragnheiðar verkefninu og er hún á meðal stofnenda Matthildar – samtaka um skaðaminnkun.
Annars vegar verður Svala forstöðukona í rótgrónu heimili fyrir karlmenn, þar sem íbúarnir hafa langa sögu um heimilisleysi, eru með virkan vímuefnavanda og glíma jafnframt við annars konar vanda. Hins vegar verður hún forstöðukona í nýju, tímabundnu neyðarhúsnæði fyrir karlmenn sem hafa nýtt sér neyðarskýli borgarinnar. Markhópur þeirrar þjónustu eru einstaklingar sem eru með virkan vímuefnavanda en hafa tiltölulega litlar þjónustuþarfir. Úrræðið verður nokkurs konar millistig á leið einstaklings frá neyðarskýli til sjálfstæðrar búsetu. Það er í samræmi við ákvörðun velferðarráðs fyrr á árinu, um að vinna að útfærslu á þrepaskiptri þjónustu innan málaflokksins. Samkvæmt þeirri ákvörðun eiga einstaklingar að fá einstaklingsbundinn stuðning, endurhæfingu og mat á þjónustuþörfum á millistiginu, til að búa sig undir sjálfstæðari búsetu.
Fékk samkenndina snemma í uppvextinum
Umburðarlyndi og fordómaleysi í garð fólks sem glímir við vímuefnavanda má segja að Svala hafi fengið snemma í uppvexti. Þegar hún var sex ára, var það hluti af hennar veruleika að heimsækja föður sinn á áfangaheimili. Seinna, þegar faðir hennar hafði náð góðum bata og var sjálfur farinn að stýra áfangaheimili, dvaldi hún með honum þar í lengri tíma og kynntist mönnunum sem þar dvöldu. „Þessi reynsla mín stuðlaði að því, að ég hef haft samkennd og skilning gagnvart fólki sem er að kljást við fíknivanda frá ungum aldri og hef aldrei upplifað óöryggi gagnvart fólki sem glímir við þennan vanda. Fólk með vímuefnavanda á skilið jafngóða heilbrigðisþjónustu og félagslega þjónustu og allir aðrir í samfélaginu.“
„Fólk með vímuefnavanda á skilið jafngóða heilbrigðisþjónustu og félagslega þjónustu og allir aðrir í samfélaginu.“
Dýrmætt verkefni að fá tækifæri til að þróa þjónustuna
Svala mun koma að þróun og uppbyggingu á nýja úrræðinu. „Ég hef mikinn áhuga á uppbyggingu og framþróun í velferðarmálum. Ég er mjög árangursmiðuð og þrífst vel í síbreytilegu og krefjandi umhverfi, svo þegar ég sá að það ætti að opna nýtt búsetuúrræði í Reykjavík fyrir karlmenn sem glíma við heimilisleysi, varð ég strax áhugasöm og ákvað að sækja um. Þetta er ótrúlega flott og mikilvægt skref hjá Reykjavíkurborg, því þetta er tegund af búsetu sem hefur verið þörf á lengi. Mér finnst dýrmætt verkefni að fá tækifæri til þess að koma að þróun á úrræðinu og þjónustunni frá byrjun,“ segir Svala. Hún muni meðal annars leggja áherslu á að íbúar fái samþætta þjónustu en í því felst gott samstarf á milli félagsþjónustunnar og heilbrigðiskerfisins.
Markmiðið að styðja íbúa við að halda heimili
Marga af íbúum rótgróna heimilisins þekkir Svala frá fyrri störfum sínum innan málaflokksins. „Þarna búa níu ólíkir einstaklingar. Hver þeirra hefur sína sögu, persónulegu styrkleika og áskoranir í lífinu. Þetta eru menn sem eiga mikið líf að baki og búa yfir ótrúlegri seiglu og þrautseigju.“
Stuðningurinn sem íbúar fá er einstaklingsmiðaður og er alltaf í samráði við íbúa.. Sumir fá mikinn stuðning við allar athafnir daglegs lífs og aðrir þurfa lítinn stuðning. Starfsfólk aðstoðar einnig íbúa með fjármál, mat og næringu, að sækja sér heilbrigðisþjónustu og annarskonar aðstoð. „Markmiðið er að styðja íbúa við að halda heimili, auka lífsgæði þeirra og vald yfir eigin aðstæðum. Við vinnum stuðninginn út frá heildrænni skaðaminnkandi nálgun og þörfum og áhugahvöt hvers og eins. Við leggjum einnig áherslu á að íbúar upplifi mannlega reisn og notendasamráð.“
„Markmiðið er að styðja íbúa við að halda heimili, auka lífsgæði þeirra og vald yfir eigin aðstæðum.“
Mikil sérfræðiþekking hafi skapast hjá borginni
Starfsfólkið á vinnustaðnum þekkir hún líka margt hvert, þar sem hún hefur um nokkurt skeið sinnt kennslu um skaðaminnkandi hugmyndafræði og vímuefnavanda á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Með því að beita skaðaminnkandi hugmyndafræði er lögð áhersla á að draga úr neikvæðum og hættulegum afleiðingum af löglegum og ólöglegum vímuefnum. Fólk fær nauðsynlegan stuðning og þjónustu, óháð vímuefnanotkun. „Þetta snýst um að sýna fólki virðingu og skilning á því að það er ástæða fyrir því að fólk notar vímuefni,“ segir hún. Starfsfólkið sem starfar í málaflokknum innan Reykjavíkurborgar hafi tileinkað sér hugmyndafræðina og kunni að veita skaðaminnkandi þjónustu. Í því felst meðal annars að veita skaðaminnkandi inngrip, eins og nálaskiptiþjónustu, notkun á a Naloxone-nefúða í bráðaðstæðum og eiga samskipti við þjónustunotendur um þeirra vímuefnanotkun og hvernig hægt er að draga úr skaðlegum afleiðingum hennar „Þekkingin hjá starfsfólki málaflokksins er almennt orðin mjög góð. Að mínu mati er mikill sigur fólginn í því hvað starfsfólk innan málaflokksins hjá Reykjavíkurborg er orðið fært.“
Beiting skaðaminnkandi nálgunar er ein af meginstoðum stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir sem tók gildi 2019 og gildir til ársins 2025.
„Að mínu mati er mikill sigur fólginn í því hvað starfsfólk innan málaflokksins hjá Reykjavíkurborg er orðið fært.“
Sumarstörf í málaflokki heimilislausra
Ertu að leita að sumarstarfi og hefur áhuga á málaflokki heimilislausra? Það er laust starf í búsetuúrræðinu sem Svala stýrir. Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 12. maí. Einnig er þessa dagana verið að að leita að sumarafleysingafólki í VoR-teymið, sem sinnir fjölbreyttri þjónustu og stuðningi á vettvangi og á heimilum fólks. Umsóknarfrestur vegna þess starfs er 23. maí næstkomandi.