Velferðarráð - Fundur nr. 445

Velferðarráð

Ár 2023, miðvikudagur 1. febrúar var haldinn 445. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:09 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Heiða Björg Hilmisdóttir, Helga Þórðardóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Magnús Davíð Norðdahl, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Þorvaldur Daníelsson. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Aðalbjörg Traustadóttir, Anna Sigrún Baldursdóttir, Dís Sigurgeirsdóttir, Halla Hallgrímsdóttir, Kristjana Gunnarsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL22050007.

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 19. janúar 2023, þar sem tilkynnt er um að samþykkt hafi verið á fundi borgarstjórnar þann 17. janúar 2023 að Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir taki sæti í velferðarráði í stað Söndru Hlífar Ocares. Jafnframt var samþykkt að Sandra taki sæti sem varafulltrúi í ráðinu í stað Helga Áss Grétarssonar. MSS22060049.

    Fylgigögn

  3. Lögð fram stöðuskýrsla stýrihóps um endurskoðun aðgerðaáætlunar með stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, dags. 1. febrúar 2022, ásamt uppfærðu erindisbréfi, dags. 1. febrúar 2023. Einnig lagt fram minnisblað sviðsstjóra, dags. 1. febrúar 2023, með stöðumati á stefnu aðgerða í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, ásamt fylgiskjali. VEL23010080.

    Sigþrúður Erla Arnardóttir, framkvæmdastjóri Vesturmiðstöðvar, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun: 
     
    Öllum aðgerðum í aðgerðaáætlun með stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir er annað hvort  lokið eða í vinnslu. Kostnaður hefur vaxið mikið en á tímabilinu janúar – nóvember 2022 hefur Reykjavíkurborg varið rúmlega 1 ma.kr. Þá eru ekki meðtalin úrræði sem falla undir málaflokk fatlaðs fólks en áður hafa þau heimili verið meðtalin undir málaflokk heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Heildarkostnaður vegna þessara heimila frá árinu 2018 til nóvember 2022 jókst úr 167 m.kr. í 514 m.kr. á tímabilinu. Ný aðgerðaáætlun er í vinnslu þar sem lagt er upp með þrepaskipta þjónustu. Forgangsmál er að tryggja viðkomandi öruggt húsnæði en virkni verði síðan hluti af einstaklingsbundinni áætlun þegar öruggt húsnæði er tryggt. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
     
    Gott er að sjá að margt hefur verið gert í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Jákvætt er að allar 34 aðgerðirnar séu komnar í ferli og 14 aðgerðum lokið. Í stöðumati kemur fram  að stefnt sé að því að heimilislaus einstaklingur dvelji ekki lengur í neyðarskýlum en í 3 mánuði að meðaltali. Það vekur athygli fulltrúa Flokks fólksins að fjöldi þeirra sem nýta skýlin lengur en þrjá mánuði hefur aukist milli áranna 2020 og 2021. Fjöldinn var 34 einstaklingar árið 2020 en fjölgaði í 48 einstaklinga árið 2021. Fróðlegt væri að fá upplýsingar um hvort enn sé fjölgun í þessum hópi og hvernig hægt sé að sporna gegn þessari þróun. Stefnt er að því að börnum sem búa við ótryggar húsnæðisaðstæður, og foreldrum sem eru á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði, hafi fækkað um 50% árið 2025. Samkvæmt stöðumati þá hefur staðan versnað til muna því árið 2020 var fjöldi barna 201 og fjöldi barnafjölskyldna 110. Árið 2022 var fjöldinn kominn í 411 börn og fjöldi barnafjölskyldna 206.  Flokkur fólksins hefur áhyggjur af þessari þróun og vill að þessi þróun verði skoðuð sérstaklega.

    Fylgigögn

  4. Lagðar fram svohljóðandi tillögur stýrihóps um endurskoðun aðgerðaáætlunar með stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, dags. 1. febrúar 2023:

    Lagt er til að velferðarsviði verði heimilað að hækka gistináttagjald hjá sveitarfélögum fyrir gistingu í neyðargistiskýlum Reykjavíkurborgar í 46.000  kr. fyrir hverja gistinótt, þegar einstaklingur á lögheimili utan Reykjavíkur, þannig að gjaldið samsvari raunkostnaði. Gjaldið verði innheimt ársfjórðungslega og fjárhæð taki þá breytingu miðað við vísitölu neysluverðs.  

    Lagt er til að starfshópi verði falið að leggja til útfærslu á og að kostnaðarmeta tillögu stýrihóps um endurskoðun aðgerðaáætlunar með stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir um þrepaskipta þjónustu við heimilislausa með miklar og flóknar þjónustuþarfir.  

    Lagt er til sviðsstjóra verði falið að eiga samtal við Samband íslenskra sveitarfélaga um mikilvægi aðkomu ríkisins að málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Skorað er á sambandið að beita sér fyrir því að ríkið komi með sama hætti að fjármögnun og skipulagi málaflokksins og tíðkast erlendis.

    Lagt er til sviðsstjóra verði falið að eiga viðræður við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um samstarf sveitarfélaganna í málefnum heimilislausra. 

    Lagt er til að velferðarsviði verði falið að leita liðsinnis Eignaskrifstofu Reykjavíkurborgar með  að   finna húsnæði sem mögulega gæti hentað sem hjúkrunarrými fyrir einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir.

    Tillögunum fylgir greinargerð. VEL23010082.
    Samþykkt.

    Sigþrúður Erla Arnardóttir, framkvæmdastjóri Vesturmiðstöðvar, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun: 
     
    Áfangatillögur þessar eru lagðar fram en stefnt er að því að lokatillögur verði lagðar fram í maí 2023. Um þriðjungur þeirra sem þangað leita koma úr öðrum sveitarfélögum eða hafa erlent ríkisfang. Mikilvægt er að skerpa á samtali við önnur sveitarfélög og við ríkið um þátttöku í kostnaði því við viljum að sjálfsögðu ekki vísa nokkrum frá í neyð. Önnur sveitarfélög hafa þrátt fyrir hvatningu ekki sett upp sambærileg úrræði í sínum umdæmum og því situr Reykjavíkurborg ein uppi með kostnað við að þjónusta þennan jaðarsetta hóp. Það er óásættanlegt og því er sviðsstjóra falið að fara í samtal við Samband íslenskra sveitarfélaga og SSH um aðkomu annarra sveitarfélaga og ríkisins að því að standa straum af þessari mikilvægu þjónustu.  

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Sjálfstæðisflokkurinn fagnar því að tillaga flokksins um neyðarathvarf fyrir heimilislausar konur hafi verið innleidd efnislega en hún verður sett á laggirnar undir formerkjum nýs áfangaheimilis. Þann 16. nóvember 2021 lagði Sjálfstæðisflokkurinn fyrst til að Reykjavíkurborg myndi reka athvarf fyrir konur með sólarhringsþjónustu og sérherbergjum og baðherbergjum. Byggði sú tillaga á úrræði með herbergjagistingu fyrir heimilislausar konur sem sett var á laggirnar vegna Covid og reyndist afar farsælt. Eftir snúning í borgarstjórn var tillögunni vísað í velferðarráð og þaðan í stýrihópinn og hefur nú hlotið framgöngu. Nú verður athvarfið að áfangaheimili þar sem konur geta búið til lengri tíma og hlotið meiri stuðning en áður. Þetta er hluti af þeirri breytingu að innleiða þrepaskipta þjónustu í málaflokknum og þannig aðlaga þjónustu borgarinnar betur að þjónustuþegum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í velferðarráði þakka kollegum sínum í borgarstjórn fyrir gott samstarf í stýrihópnum en einnig á starfsfólk sérstakt hrós skilið fyrir einkar góð störf.

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Nauðsynlegt er að tryggja að nægt húsnæði sé til staðar til þess að geta útvegað þeim húsnæði sem þurfa á því að halda. Tryggja þarf viðeigandi stuðning þegar slíkt á við. Enginn á að þurfa að vera heimilislaus. Samkvæmt nýjustu tölum eru 64 manneskjur á bið eftir húsnæði sem hentar þörfum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Í ársbyrjun 2022 voru 72 á þeim biðlista, nauðsynlegt er að tryggja að enginn bíði til lengdar eftir viðeigandi húsnæði.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
     
    Flokki fólksins líst vel á tillögur stýrihóps um endurskoðun aðgerðaáætlunar með stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Mikilvægt  er að eiga  viðræður við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um samstarf í málefnum heimilislausra. Flokkur fólksins fagnar sérstaklega fimmtu tillögu hópsins þar sem lagt er til að velferðarsviði verði falið að leita liðsinnis Eignaskrifstofu Reykjavíkurborgar með að finna húsnæði sem mögulega gæti hentað sem hjúkrunarrými fyrir einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Flokkur fólksins hvetur velferðarsvið að koma þessum tillögum fljótt og vel í framkvæmd því við megum ekki vanrækja þarfir þessara viðkvæmu einstaklinga. 

    Fylgigögn

  5. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 1 febrúar 2023, um fjármögnun neyðarhúsnæðis fyrir heimilislausa karlmenn:

    Lagt er til að breyting verði gerð á fjárhagsáætlun velferðarsviðs 2023 vegna reksturs neyðarhúsnæðis fyrir heimilislausa karla sem dvalið hafa í langan tíma í neyðarskýlum borgarinnar. Tilfærsla fjárheimilda verður á milli þjónustuþátta. Áætlunin gerir ráð fyrir 155 m.kr. á ári og mun fjárheimildin taka mið af fjölda mánaða í rekstri.

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL23010070.

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi breytingartillögu:

    Lagt er til að liðurinn Samningar og styrkir (VÞ032) að upphæð 35 m.kr. sem getið er um í greinargerð verði tekinn út úr þeim þjónustuþáttum sem færa á af fjárheimildum sviðsins.

    Samþykkt.
    Tillagan er samþykkt svo breytt.

    Sigþrúður Erla Arnardóttir, framkvæmdastjóri Vesturmiðstöðvar, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mikilvægt er að tryggja að nægt fjármagn sé til staðar til að tryggja þjónustu. Í því samhengi hafa sósíalistar lagt áherslu á mikilvægi þess að útsvar verði lagt á fjármagnstekjur. Slíkt er ekki hægt án laga frá Alþingi og ítreka sósíalistar mikilvægi þess að slíkt verði gert.  Mikilvægt er að koma á fót neyðarhúsnæði í miðborginni. Einnig er mikilvægt að tryggja góða þjónustu í öllum málaflokkum og efla þarf tekjustofna sveitarfélaga. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
     
    Lagt er til að breyting verði gerð á fjárhagsáætlun velferðarsviðs 2023 vegna reksturs neyðarhúsnæðis fyrir heimilislausa karla sem dvalið hafa í langan tíma í neyðarskýlum borgarinnar. Tilfærsla fjárheimilda verður á milli þjónustuþátta. Áætlunin gerir ráð fyrir 155 m.kr. á ári og mun fjárheimildin taka mið af fjölda mánaða í rekstri. Flokkur fólksins fagnar því að loks hafi fundist fjármunir í þetta mikilvæga  verkefni með því að forgangsraða í þágu þessa viðkvæma hóps. Tillagan er búin að vera á bið alltof lengi en tillagan var upphaflega lögð fram 14. september 2022.

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning á þarfagreiningu vegna neyðarskýlis fyrir heimilislausar konur. VEL23010083.

    Ricardo Mario Villalobos, deildarstjóri húsnæðis og búsetu í fjármáladeild velferðarsviðs,  Soffía Hjördís Ólafsdóttir, teymisstjóri málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, og Sigþrúður Erla Arnardóttir, framkvæmdastjóri Vesturmiðstöðvar, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

  7. Lögð fram endurskoðuð viðbragðsáætlun neyðarstjórnar velferðarsviðs vegna veðurs í  neyðarskýlum Reykjavíkurborgar. VEL23010084. 

    Sigþrúður Erla Arnardóttir, framkvæmdastjóri Vesturmiðstöðvar, og Soffía Hjördís Ólafsdóttir, teymisstjóri málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
     
    Hér er verið að endurskoða viðbragðsáætlun neyðarskýla vegna veðurs. Það er gott og gilt að slík viðbragðsáætlun þurfi endurskoðunar við en best væri að til þess þyrfti ekki að koma. Það þyrfti ekki viðbragðsáætlun ef borgin hefði opið skjól fyrir heimilislausa allan sólarhringinn yfir vetrartímann þegar mestu vetrarhörkurnar eru  hvað líklegastar. Það er algjörlega ólíðandi að okkar minnstu bræður og systur þurfi að hírast úti í vetrarhörkum.  Flokkur fólksins hefur lagt til að opnað verði nýtt skjól sem opið er allan sólarhringinn ef ekki er hægt að hafa neyðarskýlin opin. Fordæmi eru fyrir slíku athvarfi víða erlendis. Rými þar sem heimilislausir geta komið inn þegar þeim hentar til að hvílast og borða. Flokkur fólksins getur aldrei samþykkt að fólk sé rekið út yfir vetrartímann þegar ekkert annað skjól bíður þeirra. 

    Fylgigögn

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 1. febrúar 2023, um niðurfellingu reglna um styrki til áfangaheimila, ásamt minnisblaði um styrki til áfangaheimila, dags. 11. janúar 2023:

    Lagt er til að reglur Reykjavíkurborgar um styrki til áfangaheimila frá 16. desember 2008, sem borgarstjórn samþykkti að leggja niður á fundi 6. desember 2022, falli úr gildi 1. apríl 2023.   

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL23010071.
    Samþykkt. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Upphaflegt markmið reglna um styrki til áfangaheimila var að jafna stöðu íbúa á áfangaheimilum við aðra sem geta sótt húsnæðisstuðning, en sú breyting á lögum hefur orðið síðan reglur um styrki til áfangaheimila voru samþykktar í velferðarráði 16. desember 2008, að nú geta leigjendur áfangaheimila skráð þar lögheimili og sótt um húsnæðisstuðning eins og aðrir íbúar Reykjavíkur. Reglur um styrki til áfangaheimila eru því ekki nauðsynlegar með sama hætti og áður. Mikilvægt er að rekstraraðilar fái upplýsingar um þessa ákvörðun með góðum fyrirvara svo þau geti brugðist við og sótt eftir atvikum um stuðning til velferðarráðs í gegnum styrkjapott fyrir þeirri þjónustu sem þeir veita leigutökum.
     
    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
     
    Lagt er til að reglur Reykjavíkurborgar um styrki til áfangaheimila verði lagðar niður. Flokkur fólksins minnir á skeyti sem allir borgarfulltrúar fengu nýlega frá Draumasetrinu. Þar er óskað enn og aftur eftir svörum við spurningum Draumasetursins  um hvort stuðningurinn verði tekinn af Draumasetrinu og hvernig fyrirkomulagið verður í kringum þann gjörning. Í skeyti þessu er lýst mikilli óvissu um framhaldið og er það án efa hjá fleiri áfangaheimilum sem þessi breyting snertir. Óvissan er ekki aðeins fyrir rekstraraðila heldur einnig íbúa. Vel kann að vera að þessar reglur séu komnar til ára sinna en það er ekki hægt að bjóða fólki upp á að vita ekki hvað tekur við eða bíður þeirra sem treysta á úrræði af þessu tagi.

    Fylgigögn

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga starfshóps um styrkveitingar velferðarráðs úr borgarsjóði fyrir árið 2023:

    Lagt er til að velferðarráð samþykki tillögu starfshóps um styrkveitingar velferðarráðs úr borgarsjóði fyrir árið 2023. 

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL23010021.

    Almennir styrkir 2023:

    Björk Vilhelmsdóttir. Tækifærið. 1.000.000 kr. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:

    Lagt er til að velferðarráð samþykki tillögu Samfylkingar, Framsóknar og Pírata að upphæð styrkveitingu velferðarráðs úr borgarsjóði fyrir árið 2023 til Tækifærisins ehf. um 1.500.000 kr. (eina milljón og fimm hundrað þúsund krónur) vegna verkefnisins Tækifærið.

    Greinargerð fylgir tillögunni. 
    Breytingartillagan er samþykkt. 
    Tillagan er samþykkt svo breytt.

    Guðrún Barbara Tryggvadóttir. Kórstjórn fyrir kór Korpúlfa í Borgum. 180.000 kr. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi breytingartillögu

    Lagt er til að velferðarráð samþykki tillögu Samfylkingar, Framsóknar og Pírata um styrkveitingu velferðarráðs úr borgarsjóði fyrir árið 2023 til Guðrúnar Barböru Tryggvadóttur að upphæð 300.000 kr. (þrjú hundruð þúsund) vegna verkefnisins Kórstjórn fyrir kór Korpúlfa í Borgum.

    Breytingartillagan er samþykkt.
    Tillagan er samþykkt svo breytt.

    Hjálparstarf kirkjunnar. Taupokar með tilgang. 600.000 kr. 
    Samþykkt.

    Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu. Frú Ragnheiður. 500.000 kr.
    Samþykkt.

    Reiðhjólabændur, félagasamtök. Frelsishjól. 500.000 kr.
    Samþykkt.

    Samvera og súpa, félagasamtök. Samvera og súpa. 200.000 kr.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:

    Lagt er til að velferðarráð samþykki tillögu Samfylkingar, Framsóknar og
    Pírata um styrkveitingu velferðarráðs úr borgarsjóði fyrir árið 2023 til Samveru
    og súpu að upphæð 300.000 (þrjú hundruð þúsund) vegna verkefnisins
    Samvera og súpu.

    Breytingartillagan er samþykkt. 
    Tillagan er samþykkt svo breytt.

    Sigurður Kristinn Sigurðsson. Kór félagsstarfs aldraðra í Reykjavík (Söngfuglar). 180.000 kr.
    Samþykkt.

    Uppkast ehf. Aðgangur grunnskólabarna innan félagsþjónustunnar að Menntakasti. 750.000 kr.
    Felld. 

    Vinaskákfélagið. Skákiðkun. 200.000 kr. 
    Samþykkt.

    Þjónustusamningar til eins árs 2023:

    Afstaða til ábyrgðar. Þjónustusamningur við Afstöðu 2023. 4.000.000 kr.
    Samþykkt.

    Einhverfusamtökin. Fræðsla um einhverfu til skóla, starfsendurhæfinga og annarra stofnana. 1.000.000 kr.
    Felld.

    Þjónustusamningar til þriggja ára:

    Fulltrúar Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:

    Lagt er til að velferðarráð samþykki tillögu fulltrúa Framsóknar og Pírata um
    styrkveitingu velferðarráðs úr borgarsjóði fyrir árið 2023 til ADHD samtakana
    að upphæð 2.000.000 (tvær milljónir króna) í formi þjónustusamnings til þriggja
    ára vegna verkefnisins Ráðgjöf og stuðningur við fólk með ADHD.

    -    Heiða Björg Hilmisdóttir víkur af fundi á meðan afgreiðslu tillögunnar stendur. 
    Samþykkt. Vísað til borgarráðs.
    Memmm Play, félagasamtök. Opinn leikskóli Memmm Play. 4.000.000 kr.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:

    Lagt er til að velferðarráð samþykki tillögu Samfylkingar, Framsóknar og Pírata um styrkveitingu velferðarráðs úr borgarsjóði fyrir árið 2023 til Memmm play að upphæð 11.870.000 (ellefu milljónir átta hundruð og sjötíu þúsund krónur) í formi þjónustusamnings til þriggja ára vegna opna leikskólans Memmm Play.

    Greinargerð fylgir tillögunni. 
    Breytingartillagan er samþykkt. 
    Tillagan er samþykkt svo breytt. Vísað til borgarráðs. 

    Alanó klúbburinn, líknarfélag. Alanó klúbburinn, 12-spora hús. 5.000.000 kr.
    Samþykkt. Vísað til borgarráðs.

    Bergið Headspace. Bergið Headspace. 3.000.000 kr.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:

    Lagt er til að velferðarráð samþykki tillögu Samfylkingar, Framsóknar og Pírata um styrkveitingu velferðarráðs úr borgarsjóði fyrir árið 2023 til Bergsins Headspace að upphæð 4.000.000 (fjórar milljónir króna) í formi þjónustusamnings til þriggja ára. 

    Breytingartillagan er samþykkt.
    Tillagan er samþykkt svo breytt. Vísað til borgarráðs.

    Blindrafélagið. Stuðningur til sjálfstæðis. 3.000.000 kr.
    Samþykkt. Vísað til borgarráðs.

    Félag heyrnarlausra. Þjónusta við heyrnalausa íbúa Reykjavíkur. 4.000.000 kr.
    Samþykkt. Vísað til borgarráðs.

    Foreldrahús ses. VERA - dagmeðferðarrúrræði fyrir unglinga í neysluvanda og fjölskyldur þeirra. 10.000.000 kr. 
    Samþykkt. Vísað til borgarráðs.

    MS félag Íslands. Ráðgjafarþjónusta. 3.000.000 kr.
    Samþykkt. Vísað til borgarráðs.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:

    Lagt er til að velferðarráð samþykki tillögu Samfylkingar, Framsóknar og Pírata um styrkveitingu velferðarráðs úr borgarsjóði fyrir árið 2023 til Hugarafls að upphæð 2000000 (tvær milljónir króna) í formi þjónustusamnings til þriggja ára vegna verkefnisins Notendastýrð starfsemi byggð á valdeflingu og batahugmyndafræði.
    Breytingartillagan er samþykkt. Vísað til borgarráðs. 

    Fylgigögn

  10. Lagt er til að Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir taki sæti sem varamaður í áfrýjunarnefnd velferðarráðs í stað Söndru Hlífar Ocares. Lagt er til að Þorvaldur Daníelsson taki sæti sem annar varamaður í stað Heiðu Bjargar Hilmisdóttur. VEL22060021.

    Samþykkt.

  11. Lögð fram til kynningar drög að þjónustusamningi Reykjavíkurborgar við Stígamót, dags. 31. janúar 2023. VEL22110124.

  12. Lögð fram til kynningar drög að samningi Reykjavíkurborgar við Rannsóknir og greiningu um rannsóknir á högum og líðan reykvískra barna í 5. til 10. bekk árið 2023, dags. 10. janúar 2023, ásamt fylgiskjölum. VEL23010085.

  13. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um að notkun leigubíla fyrir starfsfólk velferðarsviðs verði eingöngu í undantekningartilfellum, sbr. 6. lið fundargerðar velferðarráðs 21. desember 2022, ásamt umsögn velferðarsviðs, dags. 1. febrúar 2023.  

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL22120102. 

    Felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar  Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Allir reikningar vegna leigubíla fara í tvöfalt rafrænt samþykktarferli og getur yfirmaður yfirfarið tilefni hverrar ferðar. Velferðarsvið vinnur út frá samræmdu verklagi Reykjavíkurborgar sem er útgefið af Fjármála- og áhættustýringarsviði, við treystum sviðsstjóra til að fylgjast vel með þessum kostnaði. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
     
    Það er ekki framhjá því litið að leigubílakostnaður velferðarsviðs er óþarflega hár.  Í umsögn kemur fram að starfsmönnum velferðarsviðs hafi nýlega boðist að nýta aðra ferðamáta. Í því felst að nýta strætó eða leigja rafmagnshlaupahjól frá Hopp í stað þess að nota leigubíla. Flokkur fólksins fagnar þessari viðhorfsbreytingu. Samkvæmt umsögn þá er helsta ástæða fyrir því að starfsmenn taki leigubíla sú að starfsmenn þurfa að sækja vaktir áður en strætó hefur göngu. Jafnframt er tekið fram að það sé réttur starfsfólks samkvæmt kjarasamningi að taka leigubíl í útköllum.  Flokkur fólksins hefur skilning á því að í slíkum tilfellum  er nauðsynlegt  að taka leigubíl og ávallt verður að viðurkenna kjarasamninga. Flokki fólksins finnst hins vegar mjög sérkennilegt að sérfræðingar sem veita skólaþjónustu og/eða starfsmenn sem þurfa að sækja fundi milli staða á vinnutíma þurfi að nota leigubíla. Þarna væri hægt að spara með því notast við vistvæna deilibíla. Nú er hart í ári og er þetta eitt af því sem má klárlega draga úr þótt þetta teljist kannski ekki háar upphæðir í stóra samhenginu. Tillagan felld. 

    Fylgigögn

  14. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um skipun starfshóps um úttekt á búsetuhögum öryrkja og búsetuúrræðum í Reykjavík, sbr. 20. lið fundargerðar velferðarráðs frá 11. janúar 2023. 

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL23010029.

    Felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Góð tillaga en ansi umfangsmikil og kostnaðarsöm. Borgin hefur ekki upplýsingar um þennan hóp að þessu leiti og ætti slík úttekt frekar að vera á forræði ríkisins eða rannsóknarstofnana

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
     
    Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Félagsvísindastofnunar þá er staða öryrkja á leigumarkaði mjög erfið. Öryrkjar eiga almennt erfitt með að fá leigt húsnæði á almennum markaði og þeir greiða allt of stóran hluta tekna sinna í leigukostnað. Eingöngu 58% öryrkja búa í eigin húsnæði samanborið við 74% allra fullorðinna á Íslandi. 29 prósent öryrkja eru á leigumarkaði en 13 prósent allra fullorðinna hér á landi. Öryrkjar eru tvöfalt líklegri en aðrir til að hafa miklar áhyggjur af húsnæðiskostnaði. Með hliðsjón af þessum niðurstöðum telur Flokkur fólksins  brýnt að láta gera úttekt á búsetuhögum öryrkja og búsetuúrræðum sem þeim standa til boða í Reykjavík. Tillagan er felld sem er miður því það þarf svo sannarlega að bæta stöðu öryrkja á húsnæðismarkaði. 

    Fylgigögn

  15. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um sálfélagslegt meðferðarúrræði fyrir eldri borgara sem búa á hjúkrunarheimilum eða í heimahúsi, sbr. 21. lið fundargerðar velferðarráðs frá 11. janúar 2023. 

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL23010030.

    Vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands og sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:
     
    Þessi tillaga var lögð fram og afgreidd í borgarstjórn 6. desember 2022 og hún hefur því þegar fengið afgreiðslu og er því vísað frá.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að stofnað verði sálfélagslegt meðferðarúrræði fyrir eldri borgara sem búa á hjúkrunarheimilum eða í heimahúsi til að fyrirbyggja eða draga út notkun geðlyfja. Tillögunni er vísað frá. Flokki fólksins finnst að það þurfi að gera betur í að huga að andlegri vellíðan eldra fólks. Það er ekki nóg að auka eingöngu velferðartækni. Reykjavík sem sveitarfélag á langt í land með að veita eldra fólki viðunandi þjónustu  Þessi málaflokkur hefur ekki verið í forgangi. Það gerist sennilega oftar en margur vill vita að eldra fólk gefst upp á að vera heima og þá ekki vegna þess að það getur það ekki eða vill heldur vegna þess að það er einmana og einangrað. Eldri borgarar eiga ekki allir fjölskyldu. Þessi hópur er einnig sá sem minnst er tæknivæddur og nýtir því ekki velferðartækni. Auk þess kemur ekkert í staðinn fyrir samtalið og nærveruna. Ríki og sveitarfélög þurfa að vinna mun betur saman í að sinna þessum málaflokki í stað þess að benda stöðugt hver á annan. Reykjavíkurborg þarf að ganga fram með góðu fordæmi og þrýsta á að gert verði betur. Eldra fólk hefur ekki endalausan biðtíma og þetta er ekki hópurinn sem hrópar hæst nema síður sé. 

    Fylgigögn

  16. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 1. febrúar 2023, við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata um raunkostnað við þjónustu við heimilislaust fólk, sbr. 8. lið fundargerðar velferðarráðs frá 30. nóvember 2022. VEL22110271.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:
     
    Fulltrúar meirihluta þakka fyrir greinagott svar við fyrirspurn fulltrúanna. Upplýsingarnar eru gagnlegar við stefnumótun í málaflokki heimislausra.

    Fylgigögn

  17. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 1. febrúar 2023, við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata um úrræði, fjölda notenda í neyðarskýlum og greiðslur vegna þjónustu við heimilislaust fólk, sbr. 9. lið fundargerðar velferðarráðs frá 30. nóvember 2022. VEL22110272.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:
     
    Fulltrúar meirihluta þakka fyrir greinagott svar við fyrirspurn fulltrúanna. Upplýsingarnar eru gagnlegar við stefnumótun í málaflokki heimilislausra.

    Fylgigögn

  18. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 1. febrúar 2023, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um viðbrögð velferðarsviðs við tillögum sem lagðar voru fram í borgarráði um endurskoðun ákvarðana um lokun Vinjar, Traðar og Stígs, sbr. 4. lið fundargerðar velferðarráðs frá 21. desember 2022. VEL22120100.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
     
    Flokkur fólksins fagnar því að meirihlutinn hafi séð að sér og hætt við að loka Vin en þykir á sama tíma leiðinlegt hvað málið hefur valdið gestum Vinjar miklum kvíða og að ekki hafi tekist að eyða allri óvissu um framhaldið. Flokkur fólksins leggur áherslu á að engar breytingar verði gerðar á starfsemi Vinjar nema með fullri aðkomu notenda þjónustunnar. Skipaður hefur verið starfshópur vegna starfsemi unglingasmiðjanna Stígs og Traðar. Skoða á hvort betra  sé að þjónusta þennan markhóp í samstarfi við fagfólk félagsmiðstöðva. Flokkur fólksins telur að með því að leggja niður þessar unglingasmiðjur sé verið að höggva gróflega í viðkvæma þjónustu. Á þessum stöðum er starfrækt mikilvæg þjónusta við okkar allra viðkvæmustu unglinga. Unglingasmiðjurnar Stígur og Tröð hafa tekið á móti unglingum sem hafa orðið fyrir einelti, sýna einkenni kvíða og þunglyndis og eru með slaka sjálfsmynd. Starfsemi smiðjanna hefur verið ómetanleg fyrir þennan hóp unglinga. Flokkur fólksins hvetur meirihlutann til að sjá að sér varðandi breytingar á starfsemi unglingasmiðjanna Stígs og Traðar, eins og hann gerði varðandi Vin. Flokkur fólksins telur að hér sé verið að taka mikla áhættu þar sem það er ekki öruggt að félagsmiðstöðvarnar nái að anna þessu ásamt öllum öðrum verkefnum. 

    Fylgigögn

  19. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Flokkur fólksins leggur til að skoðað verði að koma upp deilibílakerfi með vistvænum bifreiðum á miðstöðvum Reykjavíkurborgar. Flokkur fólksins hefur áhyggjur af háum leigubílakostnaði á velferðarsviði og vill leita lausna svo það sé hægt að forgangsraða fjármálum sviðsins betur. Í umsögn frá velferðarsviði kemur fram að kostnaður vegna leigubílaferða starfsmanna er meðal annars vegna ráðgjafa sem fara í vitjanir, auk sálfræðinga og annarra sérfræðinga sem veita skólaþjónustu. Einnig vegna starfsmanna sem sækja þurfa fundi eða þurfa að ferðast á milli staða á vinnutíma. Hægt væri að hafa til umráða litla vistvæna rafmagnsbíla á hverri miðstöð sem starfsfólk miðstöðvanna gæti deilt. Flokkur fólksins telur að þarna sé sóknarfæri í að gera betur bæði hvað varðar að nýta vistvænan ferðamáta og jafnframt að spara kostnað vegna leigubíla. VEL23020007. 

    Frestað.

  20. Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hver er staðan á breytingartillögu sem var samþykkt um gjaldfrjáls menningarkort til öryrkja? Er búið að innleiða þá tillögu? Breytingartillagan var svohljóðandi: Velferðarráð leggur til að öryrkjar geti fengið menningarkort á sölustöðum þess gjaldfrjálst framvísi þeir staðfestingu á örorku, svokölluðu örorkuskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins. Öryrkjar fá nú þegar aðgang að söfnum borgarinnar gjaldfrjálst og því er kostnaðaraukinn óverulegur eða einungis útgáfa kortanna. Með þessu viljum við gera það auðveldara fyrir öryrkja að sækja söfn borgarinnar og njóta þeirra menningarverðmæta sem í því felast. Kostnaðurinn sem til fellur er einungis vegna útgáfu korta sem er samkvæmt menningar- og ferðarmálasviði 750 krónur per kort og er velferðarsviði falið að útfæra fyrirkomulag varðandi það í samvinnu við menningar- og ferðamálasvið. Nú þegar geta öryrkjar með sama hætti fengið sundkort í sundlaugum borgarinnar og bókasafnskort á bókasöfnunum. VEL23020008.
     

  21. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að fá upplýsingar um hvort enn sé fjölgun í hópi heimilislausra sem nýta gistiskýlin lengur en þrjá mánuði og hvað sé nákvæmlega verið að gera til að sporna við henni? Í stöðumati stýrihóps um stöðu heimilislausra  kemur fram  að stefnt sé að því að heimilislaus einstaklingur með miklar og flóknar þjónustuþarfir dvelji ekki lengur í neyðarskýlum en í 3 mánuði að meðaltali. Það vekur athygli fulltrúa Flokks fólksins að fjöldi þeirra sem nýta skýlin lengur en þrjá mánuði hefur aukist milli áranna 2020 og 2021. Fjöldinn var 34 einstaklingar árið 2020 en fjölgaði í 48 einstaklinga árið 2021. Hefur þessi þróun haldið áfram 2022 eða hefur þróunin færst til betri vegar? VEL23020009.

Fundi slitið kl. 15:57

Heiða Björg Hilmisdóttir Sanna Magdalena Mörtudottir

Magnea Gná Jóhannsdóttir Helga Þórðardóttir

Þorvaldur Daníelsson Magnús Davíð Norðdahl

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
445. fundur velferðarráðs 1. febrúar 2023