Skapandi greinar við Hlemm

Hlemmur - húsnæði við Laugaveg 105

Húsnæði við Hlemm, Laugavegur 155, verður notað fyrir skapandi greinar og leitar Reykjavíkurborg að samstarfsaðila til að reka og halda utan um rekstur þess. Auglýst er eftir aðila sem tekur húsnæðið á leigu og sér um mögulega framleigu og utanumhald í samvinnu við Reykjavíkurborg.

Húsnæðið er um 650 fermetrar og skiptist í tvö rými. Gert er ráð fyrir að það verði nýtt sem vinnu- og lærdómsaðstaða þar sem skapandi greinar svo sem listgreinar, hönnun, forritun og önnur nýsköpun komi saman. Markmiðið er, eins og segir í auglýsingu, að efla sköpun í breiðum skilningi, binda saman sköpunarkraft einstaklinga og minni fyrirtækja í borginni, efla fræðslu og þekkingarmyndun fyrir skapandi fólk og ýta undir tengslamyndun í skapandi greinum. Horft verður til þess að starfsemin í húsinu falli að nærumhverfinu og gæði það lífi.

Við val á rekstraraðila verða nýnæmi hugmyndar, hönnun og útlit, tenging við anda skipulags á svæðinu, tilboð í eignina, þekking, reynsla og fjárhagsgeta hans ásamt viðskiptahugmynd metin.

Nánari upplýsingar og tengt efni: