Nýtt skipulag fyrir málefni ferðaþjónustu, markaðsmála og viðburða
Borgarráð samþykkti í dag nýtt fyrirkomulag ferðamála, markaðsmála og viðburða hjá Reykjavíkurborg í tengslum við stofnun Áfangastofu höfuðborgarsvæðisins. Um er að ræða tilfærslu á störfum og verkefnum þar sem stefnt er að aukinni skilvirkni, bættri þjónustu og samlegðaráhrifum innan miðlægrar stjórnsýslu.
Stjórn Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu samþykkti 12. desember 2022 stofnun Áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins sem tekur til starfa á þessu ári með framlagi frá sveitarfélögum á svæðinu ásamt stuðningi frá ríki og fyrirtækjum. Hlutverk Áfangastaðastofunnar er að styðja við þróun ferðaþjónustu á svæðinu í átt að sameiginlegri, sjálfbærri framtíðarsýn með það að markmiði að hámarka ábata svæðisins af ferðaþjónustu. Ýmsar breytingar verða vegna skuldbindinga Reykjavíkurborgar við Áfangastofuna og samþykkti borgarráð í dag tillögur um útfærslu markaðsmála og viðburða hjá borginni.
Þær fela meðal annars í sér að Höfuðborgarstofa Reykjavíkurborgar verði lögð niður frá og með 1. mars 2023 og fjárheimildir færðar í samræmi við samkomulag við Samband sveitarfélaga á Höfuðborgarsvæðinu (SSH) um stofnun Áfangastaðastofu og aðrar meðfylgjandi tillögur. Málefni ferðaþjónustunnar sem eftir verða innan Reykjavíkurborgar verði staðsett miðlægt hjá atvinnu- og borgarþróunarteymi líkt og önnur málefni sem tengjast atvinnulífinu. Þá verði markaðsmál sem eftir verða hjá borginni ásamt viðburðateymi hjá menningar- og íþróttasviði sameinuð samskiptateymi Reykjavíkurborgar undir stjórn núverandi samskiptastjóra frá og með 1. mars næstkomandi. Jafnframt er lagt til að samskiptastjóri sem leiðir teymið fái skýrt umboð þegar kemur að samskipta- og markaðsmálum Reykjavíkurborgar.
Aukin skilvirkni og bætt þjónusta
Samkvæmt tillögunum sameinast verkefni í miðlæga stjórnsýslu, á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Markaðsverkefni sem eftir verða hjá Reykjavíkurborg við stofnun Áfangastaðastofu færast yfir til samskiptateymis ásamt viðburðastjórnun sem áður tilheyrði menningar- og ferðamálasviði. Með sameiningu þessara verkefna verður hægt að auka samhæfingu í ytri ásýnd þjónustu borgarinnar og ná fram aukinni skilvirkni varðandi markaðs- og kynningarmál þvert á starfsemi borgarinnar. Ekki er um að ræða fjölgun starfa heldur aðeins tilfærslu þeirra innan borgarkerfisins með það að sjónarmiði að bæta þjónustu við fag- og kjarnasvið og auka samlegðaráhrif. Er þetta í samræmi við fjárhagsáætlun borgarinnar og tillögur um aðhald í rekstri sem samþykktar voru í desember síðastliðnum.