Aðhald og grænn vöxtur í fjárhagsáætlun Reykjavíkur sem samþykkt var í kvöld

Fjármál

Borgarstjórn þriðjudaginn 6. desember 2022 Róbert Reynisson
Horft af svölum í fullsetinn borgarstjórnarsal

Fyrsta fjárhagsáætlun meirihluta Samfylkingar, Framsóknar, Pírata, og Viðreisnar var samþykkt í borgarstjórn í kvöld. Áætlunin tekur mið af nýrri þjóðhagsspá Hagstofunnar og gerir ráð fyrir áframhaldandi vexti borgarinnar og fullri fjármögnun grunnþjónustu en aðhaldi í öðrum rekstri. 

Borgarstjórn samþykkti einnig nýja fjármálastefnu og fjárhagsáætlun til næstu fimm ára 2023-2027. Fjárhagsáætlun var samþykkt með afgreiðslu á yfir 100 hagræðingar- og umbótatillögum sem lagðar voru fram við síðari umræðu um áætlunina. Niðurstaðan gerir ráð fyrir aðhaldi í rekstri til að styrkja afkomu á rekstri A-hluta borgarsjóðs. Dregið verður saman í fjárfestingu frá fyrri áætlun en áfram verður kraftur settur í viðhaldsmál og uppbyggingu grænna innviða í vaxandi borg. Þá verður farið í margvíslegar aðgerðir til að auka skilvirkni í rekstri og hagræða á öllum sviðum starfsemi borgarinnar með það að markmiði að ekki komi til skerðingar á velferðar- og skólaþjónustu. 

Traust og ábyrg fjármálastjórn 

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir þessa fjárhagsáætlun endurspegla skynsamleg viðbrögð við aðstæðum í efnahagsmálum. „Í kjölfar heimsfaraldurs var farið í markvissar aðgerðir til að sporna gegn atvinnuleysi og farið í miklar fjárfestingar. Nú þegar harðnar aðeins á dalnum rifum við seglin í fjárfestingaráætlun og hagræðum í rekstri. Eftir sem áður stöndum við vörð um grunnþjónustu. Jafnframt er mikilvægt að knýja á um það ásamt öðrum sveitarfélögum á landinu að ríkið tryggi eðlilega og sanngjarna fjármögnun á málaflokki fatlaðs fólks.”