Nagladekk bönnuð eftir 15. apríl

Samgöngur

Túlipanar í beði.

Hlutfallið milli negldra og ónegldra dekkja í mars var 39.7% á negldum og 60,3% á ónegldum sem er svipað og það var í desember 2022. Fyrir tveimur árum var hlutfallið 41,4% á móti 58,6% á ónegldum.

Bílstjórar hafa leyfi samkvæmt umferðarlögum að vera á nagladekkjum frá 1. nóvember til 15. apríl ár hvert. Reykjavíkurborg hvetur ökumenn til að velja fremur góð vetrardekk heldur en nagladekk. Dekk með nöglum eru ekki æskileg í Reykjavík, ástæðan er margþætt en nefna má eftirfarandi:

  • Loftmengun sökum svifryks – hefur slæm áhrif á heilsu og mannlíf.
  • Hávaðamengun – truflar og þreytir íbúa.
  • Malbikið eyðist margfalt hraðar – kostnaður fyrir borgaryfirvöld og bíleigendur.
  • Vönduð naglalaus vetrardekk koma betur út í könnunum á vetrardekkjum.

Lögreglan hefur leyfi til að sekta eigendur ökutækja á nagladekkjum eftir 15. apríl og er sekt á hvert dekk fyrir sig.

Reykjavíkurborg hvetur bílstjóra til að skipta sem fyrst yfir á hentug dekk.