Borgarstjóri sendir samúðarkveðjur til Lviv

Mannlíf Mannréttindi

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Andriy Sadovyy borgarstjóri Lviv féllust í faðma eftir undirskrift samstarfssamnings milli borganna.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Andriy Sadovyy borgarstjóri Lviv fallast í faðma eftir undirskrift samstarfssamnings milli borganna.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sendi í dag samúðarbréf til Andriy Sadovyi, borgarstjóra úkraínsku borgarinnar Lviv, vegna eldflaugarárásar Rússa á íbúðablokk í borginni. Að minnsta kosti fimm létu lífið í árásinni og tugir særðust.

Dagur sendi Sadovyi borgarstjóra einnig persónulegt bréf þar sem hann harmar árásina á borgina, en borgarstjórarnir tveir innsigluðu vinasamband borganna með samstarfssamningi í Lviv í maí síðastliðnum.