Vetrarþjónustan á fullu 30. desember
Vetrarþjónusta Reykjavíkurborgar hefur verið á fullu í dag, 30. desember, fjarlægt snjó og breikkað plássið á götum. Gert er ráð fyrir slæmu veðri á höfuðborgarsvæðinu á gamlársdag og hafa gular viðvaranir verið gefnar út.
Unnið var í dag að því breikka og snyrta götur til að undirbúa næstu tvo daga sem gætu orðið erfiðir til ferða. Einnig hefur snjór verið keyrður burtu á vörubílum í dag.
Veðurspáin slæm fyrir gamlársdag
Reykjavíkurborg tekur undir hvatningu Lögreglu, Vegagerðar og Veðurstofu til íbúa að gera sem mest í dag föstudag og biður jafnframt fólk um að fara ekki út á vanbúnum bifreiðum í fyrramálið. Gular viðvarnir verða á höfuðborgarsvæðinu.
Vetrarþjónustan mun eftir atvikum sinna strætóleiðum og öðrum meginleiðum í gatnakerfi borgarinnar á gamlársdag. Færð verður leiðinleg og jafnvel ófært.
Ljóst er að ef veðurspár ganga eftir verða töluverðar samgöngutruflanir næstu 2 sólarhringa ef ekki lengur í borginni. Spáð er vaxandi suðaustanátt í nótt, 10-15 m/s og snjókomu undir morgun. Hægari og él nálægt hádegi, frost 2 til 6 stig seinnipartinn. Búist er við öðrum hvelli um kvöldið.
Áhöld um veður til að skjóta flugeldum eða tendra brennur
Almennt er búist við skafrenningi á höfuðborgarsvæðinu með takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Veðurstofan bendir fólki á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám. Sennilega viðrar ekki vel um áramótin til þess að skjóta upp flugeldum í Reykjavík.
Almannavarnir: Óvissustig á höfuðborgarsvæðinu.
Ákveðið verður fyrir hádegi á gamlársdag hvort leyfi fæst til að tendra brennur á höfuðborgarsvæðinu en það er ekki leyfilegt ef vindhraði fer yfir 10 m/s.
Von er á austan og suðaustan hvassvirði eða hríð sem hefst um eittleytið í nótt. Gott að hafa í huga að fyrir miðnætti á gamlárskvöld fer veðrið að minna á sig á ný. Samkvæmt veðurspám verður slæmt veður á nýárnótt.
Sorphirðan 30.12.22
Gráa tunnan er tæmd samkvæmt áætlun en orðin er 4-5 daga töf á tæmingu á bláum undir pappa og grænum undir plast. Gert er ráð fyrir að unnið verði á gamlársdag nema veðrið seti strik í reikninginn.