Styrkir úr borgarsjóði 2022
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsemi á árinu 2023.
Meðal markmiða styrkveitinga er að styrkja og efna til samstarfs við félagasamtök, fyrirtæki og einstaklinga um uppbyggilega starfsemi og þjónustu í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda. Styrkir eru veittir til verkefna á sviði eftirtalinna málaflokka:
• félags- og velferðarmála
• skóla- og frístundamála
• íþrótta- og æskulýðsmála
• mannréttindamála
• menningarmála
Vakin er athygli á því að við afgreiðslu styrkumsókna er horft sérstaklega til þess hversu vel umsóknir falli að mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og markmiðum að innleiðingu á kynjaðri starfs- og fjárhagsáætlun. Á reykjavik.is/styrkir er hægt að sækja um og finna leiðbeiningar um umsóknarferli.
Umsóknartímabil er frá 12. september 2022 til 12:00 á hádegi 12. október 2022.
Gert er ráð fyrir að úthlutun styrkja verði lokið í ársbyrjun 2023.
Nánari upplýsingar á www.reykjavik.is/styrkir
English:
The City of Reykjavík is currently accepting grant applications for the 2023 fiscal year. The goal of this grant program is to encourage and strengthen
cooperation with non-profit organizations, individuals, and businesses, in constructive activities and services. In accordance with the City´s policies
and priorities. Grants will be awarded for projects in the following fields:
• social and welfare
• education and leisure
• sports and youth
• human rights
• culture
To apply go to: https://reykjavik.is/en/grants.
The application deadline is at 12:00 pm on October 12th 2022.
Allocation of grants will be completed at the beginning of 2023.
The application window will be open form September 12th 2022 until 12:00pm on October 12th 2022.
More information: styrkir@reykjavik.is
Wiecej informacji: styrkir@reykjavik.is