Hverfaheimsóknir borgarstjóra
Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, flytur starfsstöð sína út í hverfi borgarinnar næstu vikur og mánuði. Hann byrjaði í Hlíðahverfi í morgun. Hann mun heimsækja starfsstöðvar og stofnanir í hverfinu.
Frá 31. janúar til 2. febrúar mun borgarstjóri ásamt nánasta samstarfsfólki hafa aðsetur á Kjarvalsstöðum.
Á meðan á veru hans stendur í hverfunum mun borgarstjóri m.a. hitta fulltrúa foreldrafélaga, heimsækja skóla og leikskóla, taka hús á Íþróttafélögum og stofnunum í hverfinu og fleira.
Borgarstjóri heldur svo opinn fund með íbúum hverfisins á Kjarvalsstöðum miðvikudaginn 2. febrúar klukkan 20. Þar verða meðal annars kynntar tillögur að nýju hverfisskipulagi, fjallað um ýmsa þjónustu í hverfinu og fleira.
Íbúar eru velkomnir á staðinn en jafnframt er bent á að fundurinn verður í beinu streymi og geta þeir sem ætla sér að taka þátt í fjarfundinum sett inn spurningar á viðburðasíðu hverfafundarins. Íbúar eru hvattir til að og taka þátt.
Hverfavikur sem eru framundan:
Hverfavika Vesturbær 8. -. 10 febrúar
Hverfavika Grafarholt-Úlfarsárdalur 14. – 16. febrúar
Hverfavika Árbær 22. – 24. febrúar
Hverfavika Laugardal 28. febrúar – 2. mars
Hverfavika Breiðholt 8.– 10. mars
Hverfadagur Kjalarnesi 17. mars
Hverfavika Grafarvogur 29. mars – 31. mars
Hverfavika Miðborg 4. apríl – 6. apríl