Frítt að skrá hunda fyrsta árið

Hvítur hundur í bandi labbar á ísi lagðri Reykjavíkurtjörn. Manneskja að labba og Fríkirkjan í bakgrunni.

Ekkert gjald verður rukkað fyrsta árið sem hundar eru skráðir og gjald fyrir hundahald verður 15.700 krónur á ári, en gefinn verður 30% afsláttur fyrir hundaeigendur sem lokið hafa viðurkenndu námskeiði um hundahald. Þetta var samþykkt í borgarstjórn fyrr í mánuðinum.

Töluvert er um óskráða hunda og til að ná markmiði um aukningu skráðra hunda í borginni fellur skráningargjaldið niður hjá nýskráðum hundum. Hækkun gjalds er í samræmi við verðlaghækkanir en er einnig ætlað að samræma gjöld við það sem gerist hjá öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Vert er að taka fram að innifalið í gjaldinu er ábyrgðartrygging fyrir hunda og að hafi hundaeigandi lokið námskeiði frá viðurkenndum hundaskóla eða þjálfara, gildir afslátturinn fyrir alla hunda viðkomandi eiganda. Ekkert handsömunargjald hefur verið rukkað af skráðum hundum og ekki verður breyting þar á. 

Hundar velkomnir 

„Eftir stofnun Dýraþjónustu Reykjavíkur hefur ásókn í þjónustu aukist mikið og sýnir tölfræði að langflest erindin, eða rúmlega helmingur þeirra, snúa að hundum,“ segir Þorkell Heiðarsson, deildarstjóri hjá Dýraþjónustu Reykjavíkur. „Þjónustan hefur verið stórbætt, við erum með vakt stóran hluta sólarhringsins, höfum sett upp ruslatunnur með hundapokum víða og þá hefur verið fjárfest í hundagerðunum, þar sem uppbygging er í fullum gangi. Löglegir hundar eru velkomnir í borginni og við viljum að fólk finni það.“ 

·       Samþykkt um hundahald í Reykjavík

·       Borgarstjórn fundargerð 20. desember 2022

·       Borgarráð fundargerð 8. desember 2022