Borgarstjóri í hverfaheimsókn í Vesturbænum
Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, er í hverfaheimsókn í Vesturbænum og mun hafa aðsetur í frístundamiðstöðinni Tjörninni dagana 8. – 10. febrúar nk. Hann mun heimsækja starfsstöðvar og stofnanir í hverfinu.
Á meðan á veru hans stendur í hverfunum mun borgarstjóri m.a. hitta fulltrúa foreldrafélaga, heimsækja skóla og leikskóla, taka hús á Íþróttafélögum og stofnunum í hverfinu og fleira.
Borgarstjóri heldur svo opinn fund með íbúum hverfisins í Vesturbæjarskóla miðvikudaginn 9. febrúar klukkan 20. Þar verður meðal annars kynnt nýtt deiliskipulag fyrir KR-svæðið og fjallað um ýmsa þjónustu í hverfinu og fleira.
Íbúar eru velkomnir á staðinn til þess að ræða þau málefni sem eru þeim hugleikin í hverfinu. Fundurinn verður einnig í beinu streymi og geta þeir sem ætla sér að taka þátt í fjarfundinum sett inn spurningar á viðburðasíðu hverfafundarins. Íbúar eru hvattir til að taka þátt.
Hverfavikur sem eru framundan:
Hverfavika Grafarholt-Úlfarsárdalur 14. – 16. febrúar
Hverfavika Árbær 22. – 24. febrúar
Hverfavika Laugardal 28. febrúar – 2. mars
Hverfavika Breiðholt 8.– 10. mars
Hverfadagur Kjalarnesi 17. mars
Hverfavika Grafarvogur 29. mars – 31. mars
Hverfavika Miðborg 4. apríl – 6. apríl