Áhersla á fjölgun íbúða í Reykjavík
Markmiðið er að skapa skilyrði fyrir uppbyggingu 1.600 nýrra íbúða á ári að meðaltali næstu 10 ár. Mesta uppbyggingin er þó ráðgerð næstu 5 ár og er markið sett á 2.000 íbúðir árlega. Þetta kemur fram í nýrri húsnæðisáætlun Reykjavíkur sem lögð var fram í borgarráði í dag.
Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að á hverjum tíma verði lóðir fyrir 1.500 – 3.000 íbúðir byggingarhæfar en til voru byggingarhæfar lóðir fyrir allt að 2.541 íbúðir í október. Áfram verður áhersla á félagslega blöndun og græna uppbyggingu. Gert er ráð fyrir að 30% verði hagkvæmar og vistvænar íbúðir og 5% félagslegar íbúðir á vegum borgarinnar.
Húsnæðisáætlun er uppfærð árlega með lykiltölum og greiningum á sviði húsnæðismála. Í áætluninni eru helstu byggingarsvæði í Reykjavík skilgreind og sagt frá hvernig uppbyggingu íbúðahúsnæðis miðar, bæði á almennum markaði og þar sem Reykjavíkurborg beitir sér sérstaklega fyrir uppbyggingu í samvinnu við húsnæðissamvinnufélög, verkalýðshreyfinguna, samtök eldri borgara, námsmenn og Félagsbústaði. Þá er fjallað um þróun byggðar og íbúafjölda, úthlutun lóða, sértækar stuðningsaðgerðir vegna húsnæðismála, hagkvæmt húsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur ásamt uppbyggingu vistvænna húsnæðis.
Hvernig er staðan á fasteignamarkaði?
Ný skýrsla um greiningu á stöðu og horfur á fasteignamarkaði var einnig lögð fram í borgarráði í dag, en hún var unnin í tengslum við gerð húsnæðisáætlunar. Farið er yfir framboð og eftirspurn íbúða, greiðslugetu og samgöngur. Stuðst er við könnun Gallup meðal íbúa um framtíðaráform og væntingar um búsetu á næstu árum. Greiningin var unnin af ARCUR ráðgjöf að beiðni Reykjavíkurborgar.
Í samantektinni kemur meðal annars fram að íbúum í Reykjavík hafi að jafnaði fjölgað um 1,2% milli ára frá 1998 en fjölgunin hafi verið talsvert meiri á árunum 2017 til 2022 eða um 1,8% að jafnaði á milli ára. Stór hluti erlendir ríkisborgarar. Einnig kemur fram að hækkandi hlutfall fólks á aldrinum 25-31 árs hefji búskap í Reykjavík á sama tíma og það sé tiltölulega stöðugt í nágrannasveitarfélögunum. Þetta setji aukinn þrýsting á fjölgun íbúða. Þá sé meðalstærð íbúða 121 fermetri en íbúðir fyrstu kaupenda séu 97 fermetrar sem er 10 fermetrum minna en fyrir áratug og gæti helgast af lægri aldri kaupenda. Flest fólk búi í 91-120 fermetra íbúðum og að flest fólk vilji búa í þeirri stærð íbúða með áherslu á fjölgun herbergja. Hæsta fermetraverð er áfram í póstnúmeri 101 og þar er einnig mestur munur milli hæsta og lægsta verðs. Verulega hafi dregið úr fjölda fasteignaviðskipa á árinu 2022 í samanburði við metárið 2021 en fjöldi íbúða til sölu hefur aukist síðustu mánuði og sölutími lengst.
2.484 íbúðir í byggingu við lok þriðja ársfjórðungs
Yfirlit innleiðingar húsnæðisáætlunar Reykjavíkur á þriðja ársfjórðungi 2022 var einnig lagt fram í borgarráði í dag. Þar kemur fram að á fyrstu níu mánuðum ársins 2022 hafi verið lokið við gerð 773 nýrra íbúða í Reykjavík, þar af 240 á þriðja ársfjórðungi. Af þessum 773 íbúðum eru 372 svokallað hagkvæmt húsnæði eða á vegum húsnæðisfélaga sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða og gerir það rúm 48% nýrra íbúða á húsnæðismarkað í borginni á tímabilinu.
Fram kemur að við lok 3. ársfjórðungs hafi 2.484 íbúðir verið í byggingu og að gangi áætlanir uppbyggingaraðila eftir gæti heildarfjöldi nýrra íbúða 2022 orðið um 1.200. Það væri þá fjórða árið í röð sem fjölgun íbúða væri yfir þúsund en aldrei hafa fleiri nýjar íbúðir komið inn á húsnæðismarkað í Reykjavík en undanfarin ár.
Íbúðum í húsnæðisáætlun fjölgar úr 23.665 í 26.414 á milli ársfjórðunga og helgast það af því að íbúðir á nýjum svæðum sem bætast við uppbyggingarferlið eru fleiri en þær sem lokið hefur verið við. Mestu munar hér um að að íbúðum á lóðum í deiliskipulagsferli fjölgar úr 6.815 í 11.447 og vega Keldur þar þyngst. Svipaður fjöldi íbúða er í byggingu og áður og íbúðum á deiliskipulögðum lóðum fjölgar nokkuð. Þær eru nú 6.293 – þar af 2.541 á byggingarhæfum lóðum, í samræmi við þau áform í uppfærðri húsnæðisáætlun að til séu lóðir fyrir uppbyggingu 1.500 til 3.000 íbúða á hverjum tíma.
Unnið er að samningi ríkis og Reykjavíkurborgar um húsnæðisuppbyggingu og gera markmið ráð fyrir uppbyggingu um 16.000 íbúða í Reykjavík á næstu 10 árum.