Ljóst er að svifryksmengun á nýársdag var yfir sólarhringsheilsuverndarmörkum. Svifryk er fínasta gerð rykagna sem eiga greiða leið í öndunarfærin en heilsuverndarmörk á sólarhring miðast við 50 míkrógrömm á rúmmetra.
Hér eru sólarhringsmeðaltölin úr öllum stöðvunum 1. janúar 2021:
|
Mælistöð |
Sólarhringur: PM 10 Míkrógrömm á rúmmetra |
|
Grensás |
95 |
|
Fjölskyldu- og húsdýragarður |
165 |
|
Farstöð I Vesturbæjarlaug |
100 |
|
Farstöð II Bústaðarvegur/Háaleitisbraut |
75 |
Fyrstu klukkustundir nýarsdags einkenndust af mikilli svifryksmegnun á höfuðborgarsvæðinu eins og greint var frá í frétt á vef borgarinnar. Þar er hægt að skoða gildin eins og þau voru fyrstu klukkustundirnar eftir miðnætti.