Opnað hefur verið fyrir umsóknir úr Forvarnasjóði Reykjavíkur en alls eru 10,7 milljónir króna til úthlutunar. Hægt er að sækja um styrki til fjölbreyttra verkefna í einstökum hverfum eða almennt í borginni.
Styrkirnir gefa einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum tækifæri til að vinna að forvörnum í borginni. Samkvæmt nýjum úthlutunarreglum geta stofnanir Reykjavíkurborgar eða starfsmenn þeirra sótt um styrki í sjóðinn en einungis þó í samstarfi við aðra aðila utan Reykjavíkurborgar.
Hlutverk Forvarnasjóðs er að stuðla að forvörnum og efla félagsauð í hverfum Reykjavíkur. Styrkir úr sjóðnum verða veittir til verkefna sem styðja:
- Forvarnir í þágu barna og unglinga
- Eflingu félagsauðs í hverfum borgarinnar
- Bætta lýðheilsu
- Markvisst samstarf íbúa, félagasamtaka, og fyrirtækja í þágu forvarna og félagsauðs
- Önnur verkefni sem mæta þeim markmiðum sem borgarstjórn setur hverju sinni
Það eru íbúaráð sem veita styrki til verkefna í hverfum en velferðarráð til almennra forvarnarverkefna í borginni. Opnað var fyrir umsóknir 31. ágúst og er umsóknarfrestur til miðnættis 30. september 2021.
Lestu nánar um Forvarnasjóð Reykjavíkurborgar og umsóknarferlið hér.