Innritað í leikskóla 20. mars

Skóli og frístund

""

Aðalinnritunardagur í leikskóla Reykjavíkurborgar fyrir haustið 2019 verður miðvikudagur 20. mars næstkomandi.

Foreldrar sæki að lágmarki um tvo leikskóla fyrir barn sitt þegar um nýja umsókn er að ræða.  Barnafjöldi er mismikill í hverfum borgarinnar og því þarf stundum að bjóða börnum leikskóladvöl í öðrum leikskóla en foreldrar hafa sett sem fyrsta val. 

Sækja má um leikskóla frá fæðingardegi barns eða strax og kennitala þess hefur verið skráð. Börn eru skráð á biðlista við eins árs aldur og raðast þau á listann eftir fæðingardegi og ári.

Áætlað er að börn, sem boðin verður leikskólavist í þessari innritun, geti hafið leikskólagöngu sína næsta haust.

Umsókn um leikskóla borgarinnar fer fram í gegnum Rafræna Reykjavík, þjónustuvef Reykjavíkurborgar.  Athuga að sjálfstætt starfandi leikskólar sjá sjálfir um innritun og innheimtu leikskólagjalda. Listi yfir sjálfstætt starfandi leikskóla.

Frá og með aðalinnritunardegi 20. mars og til 10. apríl verður unnið úr biðlistanum eins og hann stendur þann 20. mars. Umsóknir sem berast á tímabilinu 20. mars – 10. apríl raðast ekki inn á biðlista fyrr en eftir 10. apríl.

Meira um leikskóla í Reykjavík

Reglur um leikskólaþjónustu.