Samgöngur og vinnustaðir í samgönguviku 2018

Samgöngur

""

Málþing um samgöngur og vinnustaði, samgönguviðurkenningin 2018 og úrslit í keppni rafbíls, rafhjóls og rafstrætó á milli staða opinberuð 20. september.

Í tilefni samgönguviku 2018 efna Reykjavíkurborg og Festa til málþings um samgöngur og vinnustaðina í borginni.

Málþingið verður haldið í borgarstjórnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur og eru allir velkomnir. Þar mun verður hjólavottun vinnustaða kynnt og einnig deililausn í samgöngumálum sem miðar að því fólk sameinist í einkabíla í ferðum til og frá vinnu eða skóla.

Fulltrúar frá handhöfum samgönguviðurkenningarinnar 2017, Orkuveitu Reykjavíkur og Verkís, kynna samgöngustefnur vinnustaðanna og áherslur í samgöngumálum.

Einnig verða samgönguverðlaun Reykjavíkurborgar 2018 afhent. Síðast en ekki síst verða úrslit úr rafhjóla, -bíla og -strætó keppninni opinberuð.

Dagskrá:

Inngangur fundarstjóra

Ketill Berg Magnússon, Festu

Frumsýning á myndbandi: Á rafbíl, rafhjóli og rafstrætó frá Mjóddinni í Háskóla Íslands – Hver vinnur?

Hjólavottun vinnustaða – allra hagur! Sesselja Traustadóttir, framkvæmdastýra Hjólafærni á Íslandi

SAMAN – Deililausn í samgöngumálum Arndís Kristjánsdóttir, lögfræðingur

Áherslur í samgöngumálum hjá Orkuveitu Reykjavíkur, handhafa samgönguverðlaunanna 2017. Ásdís Eir Símonardóttir, mannauðssérfræðingur

Áherslur í samgöngumálum hjá Verkís, handhafa samgönguverðlaunanna 2017. Haukur Þór Haraldsson, viðskiptastjóri

Afhending samgönguverðlauna Reykjavíkurborgar 2018. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs

Fundurinn er öllum opinn en einkum sniðinn að fyrirtækjum og stofnunum sem hafa áhuga á bættum samgöngum, fyrirtækjum sem skrifað hafa undir loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar, sem og aðra áhugasama.