Reykjavíkurráð ungmenna fundar með borgarstjórn þriðjudaginn 28. febrúar og er með margar góðar tillögur á takteinum.
Fundur ungmennaráðsfulltrúa og borgarstjóra er öllum opinn en til umfjöllunar verða tillögur frá ungu fólki í Reykjavík um það sem að þeirra mati má betur fara í borginni. Fundurinn hefst kl. 15 og verður jafnframt sendur út beint.
Fundur Reykjavíkurráðs ungmenna og borgarstjórnar er orðinn að árvissum viðburði og er þessi fundur sá sextándi í röðinni. Að þessu sinni liggja níu tillögur fyrir fundinum og snúa þær m.a. að bættri hinsegin fræðslu í grunnskólum, að ungmennaráð í borginni fái úthlutað árlegu fjármagni, að úrval vegan valkosta og grænmetis verði aukið í skólamötuneytum, að móttaka Reykjavíkurborgar á hælisleitendum og umsækjendum um alþjóðlega vernd verði bætt og að leitað verði leiða til að unglingar geti komið að ráðningu starfsfólks í félagsmiðstöðvum.
Reykjavíkurráð ungmenna hefur haft í nægu að snúast undanfarna mánuði en fulltrúar úr ráðinu tóku þátt í opnun Erró sýningar á Listasafni Reykjavíkur á dögunum, áttu fulltrúa á samnorrænni ráðstefnu í Þrándheimi í Noregi, skipulögðu starfsdag fyrir unglinga í öllum ungmennaráðum Reykjavíkur, sitja í hinum ýmsu starfshópum auk þess að eiga áheyrnarfulltrúa á fundum skóla- og frístundaráðs, íþrótta- og tómstundaráðs og fulltrúa í stjórn Barnamenningarhátíðar.
Markmið með starfsemi Reykjavíkurráðs ungmenna er m.a. að skapa vettvang og leiðir til þess að gera þeim sem eru yngri en 18 ára kleift að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila og þjálfast í lýðræðislegum vinnubrögðum. Í starfi sínu í vetur og síðastliðin ár hefur Reykjavíkurráðið fjallað um málefni ungs fólks og tekið þátt í ýmsum verkefnum sem fulltrúar ungs fólks í Reykjavík. Reykjavíkurráð ungmenna er jafnframt samráðsvettvangur allra ungmennaráða sem starfa í borginni.
Sjá yfirlit yfir tillögur Reykjavíkurráðins til borgarstjórnar.