Viltu vekja athygli á gróskumiklu leikskóla- og frístundastarfi?

Skóli og frístund

""
Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs vegna leikskóla- og frístundastarfs. 
Allir geta tilnefnt til verðlaunanna; foreldrar, kennarar, ömmur og afar, borgarstarfsmenn, leikskólar, grunnskólar, frístundamiðstöðvar, aðrar stofnanir og samtök. Við val á verðlaunahöfum verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka, svo og að fjölbreytt verkefni fái viðurkenningu. Þrjú verkefni sem skara fram úr fá viðurkenningu með verðlaunagrip sem starfsstaðurinn fær til eignar.


Hvatningarverðlaun fyrir frístundastarf verða afhent á Höfuð í bleyti, uppskeruhátíð starfsfólks frístundamiðstöðvanna, 29. apríl nk. Hvatningarverðlaun fyrir framsækið leikskólastarf verða afhent á Stóra leikskóladeginum 27. maí nk.
 
Skilafrestur fyrir tilnefningar er til 31. mars 2016.
 
Athugið að hvatningarverðlaun fyrir framsækið grunnskólastarf voru afhent á öskudagsráðstefnu grunnskólakennara í liðnum mánuði.