Borgarstjórn fundar næstkomandi þriðjudag í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Fundur borgarstjórnar hefst kl. 14, þriðjudaginn 5. apríl. Á fundinum verður lögð fram ályktunartillaga borgarfulltrúa Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna, Pírata og Framsóknar og flugvallarvina um auknar tekjur til sveitarfélaga vegna ferðamanna. Einnig verður lögð fram ályktunartillaga frá sömu flokkum um griðasvæði hvala – hvalaskoðunarsvæði í Faxaflóa.
Framsóknar- og flugvallarvinir leggja fram tillögu um götuþvott sem verður rædd á fundinum og að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins verður umræða um óviðunandi ástand gatna í Reykjavík. Sami flokkur hefur umræðu um málefni Smáíbúða, Bústaða- og Fossvogshverfis.
Þá verður kosning fulltrúa í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og kosning í hverfisráð Kjalarness.
Fundir borgarstjórnar eru öllum opnir, en einnig er hægt að horfa á þá í beinni útsendingu á vef Reykjavíkurborgar. Þar er einnig hægt að nálgast ítarlega dagskrá og öll fundargögn.