Hagaskóli sigraði í Skrekk annað árið í röð

Skóli og frístund

""

Tvíeykið RuGl með samnefnt tónlistar- og dansatriði sigraði í úrslitakeppni Skrekks sem fram fór í Borgarleikhúsinu í gærkvöld. Átta skólar kepptu til úrslita í æsispennandi keppni sem sjónvarpað var á RÚV. 

Lið Haga­skóla  sigraði með tvíeykið RuGl í fararbroddi en það er skipað þeim Guðrúnu Fríðu Helgadóttur Folkmann og Ragnheiði M. Benediktsdóttur.

Í öðru sæti varð Öldu­sels­skóli með atriðið Æ elsk­an. Árbæj­ar­skóli hreppti þriðja sætið með atriðið Tveir heim­ar.

Á úrslitakvöldinu lék skólahljómsveit Austurbæjar og rapparinn Sturla Atlas flutti Skrekkslagið Mean 2 U og líka lagið San Fransisco. Mikil stemming ríkti að venju í salnum og náði spennan hámarki þegar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti Hagaskólastúlkunum sigurverðlaunin. Til hamingju Hagaskóli með þetta flotta RuGl.