Borgarstjórn Reykjavíkur fundar í Félagsmiðstöðinni Borgum á morgun þriðjudaginn 19. apríl klukkan 14.00. Tilefni þess að fundurinn fer þar fram er vera borgarstjóra í Grafarvogi.
Fundir borgarstjórnar fara reglulega fram í borgarstjórnarsal Ráðhúss Reykjavíkur en þar sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur aðsetur í Borgum þessa dagana var ákveðið að færa fundinn og halda hann í hverfinu. Þetta er í þriðja sinn sem haldinn er borgarstjórnarfundur í hverfum borgarinnar fyrst í Gerðubergi í Breiðholti, þá í Laugarlækjarskóla og nú í Félagsmiðstöðinni Borgum.
Frá stofnun bæjarstjórnar árið 1836 hafa fundir bæjar- og borgarstjórnar verið haldnir á sex stöðum, þ.e. í Landsyfirréttarhúsinu Austurstræti 22, í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg, í Góðtemplarahúsinu við Vonarstræti, í Eimskipafélagshúsinu við Pósthússtræti, Skúlatúni 2 og Ráðhúsi Reykjavíkur. Tveir sameiginlegir fundir borgarstjórnar með bæjarstjórn Akureyrar hafa einnig verið haldnir á Akureyri.
Meðal þess sem er á dagskrá fundarins í dag er m.a. tillaga um samstarf Reykjavíkurborgar við frjáls félagasamtök í umhverfismálum, umræða um jafnrétti í sveitarfélögum auk umræðu um skóla- og frístundamál í Grafarvogi .
Forseti borgarstjórnar er Sóley Tómasdóttir.
Borgarstjórnarfundurinn er öllum opinn eins og vanalega.
Fylgjast má með fundinum í beinni útsendingu og nálgast dagskrá hans og gögn á :
http://reykjavik.is/fundirborgarstjornar/borgarstjorn-i-beinni