Borgarstjóri í opinbera heimsókn til Ísafjarðarbæjar

Mannlíf

""
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur þegið boð bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar um að heimsækja Ísafjarðarbæ dagana 25. – 26. mars næstkomandi í tilefni af 150 ára kaupstaðarafmæli bæjarins.

 
Á meðan á heimsókninni stendur mun borgarstjóri eiga fund með bæjarstjóra Ísafjarðar og sveitastjórum Bolungarvíkurkaupstaðar og Súðavíkurhrepps um málefni borgar og landsbyggðar.


Hann fer í heimsókn í mjólkurbúið Örnu í Bolungarvík og flytur örfyrirlestur á Heimkomuhátíðinni á Ísafirði, þar sem fyrirtæki og einyrkjar sem starfa á norðanverðum Vestfjörðum, kynna starfsemi sína.
 
Borgarstjóri heldur aftur til Reykjavíkur síðdegis þann 26. mars nk.
 
Dagskrá heimsóknar borgarstjóra til Ísafjarðar.
 
25.3.2016
 
 17:15  Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar tekur á móti borgarstjóra á Ísafjarðarflugvelli
20:00  Mæting á tónleika Aldrei fór ég suður á Ísafirði
 21:00  Bæjarstjóri tekur vakt í sölubúð Aldrei og borgarstjóri aðstoðar í örskots stund



      

26.3.2016
 
10:00 
Morgunverðarfundur með bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar og sveitastjórum Bolungarvíkurkaupstaðar og Súðavíkurhrepps.
13:30   Heimsókn í mjólkurbúið Örnu – opið hús í Bolungarvík
14:30   Svigskíðaferð borgarstjóra með bæjarritara Ísafjarðarbæjar.
16:00 Opnun Heimkomuhátíðarinnar -  borgarstjóri er heiðursgestur og opnar hátíðina.