Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur þegið boð bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar um að heimsækja Ísafjarðarbæ dagana 25. – 26. mars næstkomandi í tilefni af 150 ára kaupstaðarafmæli bæjarins.
Á meðan á heimsókninni stendur mun borgarstjóri eiga fund með bæjarstjóra Ísafjarðar og sveitastjórum Bolungarvíkurkaupstaðar og Súðavíkurhrepps um málefni borgar og landsbyggðar.
Hann fer í heimsókn í mjólkurbúið Örnu í Bolungarvík og flytur örfyrirlestur á Heimkomuhátíðinni á Ísafirði, þar sem fyrirtæki og einyrkjar sem starfa á norðanverðum Vestfjörðum, kynna starfsemi sína.
Borgarstjóri heldur aftur til Reykjavíkur síðdegis þann 26. mars nk.
Dagskrá heimsóknar borgarstjóra til Ísafjarðar.
25.3.2016
| 17:15 | Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar tekur á móti borgarstjóra á Ísafjarðarflugvelli |
| 20:00 | Mæting á tónleika Aldrei fór ég suður á Ísafirði |
| 21:00 | Bæjarstjóri tekur vakt í sölubúð Aldrei og borgarstjóri aðstoðar í örskots stund |
26.3.2016
| 10:00 |
Morgunverðarfundur með bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar og sveitastjórum Bolungarvíkurkaupstaðar og Súðavíkurhrepps.
|
| 13:30 | Heimsókn í mjólkurbúið Örnu – opið hús í Bolungarvík |
| 14:30 | Svigskíðaferð borgarstjóra með bæjarritara Ísafjarðarbæjar. |
| 16:00 | Opnun Heimkomuhátíðarinnar - borgarstjóri er heiðursgestur og opnar hátíðina. |