Barnamenningarhátíð sett á morgun

Skóli og frístund Mannlíf

""
Barnamenningarhátíðin verður sett í sjötta skipti á morgun 19. apríl kl. 11 með gleðihátíð í Eldborgarsal Hörpu. Í ár er margbreytileikanum fagnað sérstaklega og af því tilefni mun hljómsveitin Pollapönk flytja lag sitt Litríkir sokkar og vettlingar  á setningunni.
1450 börn í fjórða bekk grunnskóla borgarinnar taka undir með hljómsveitinni en þau hafa æft lagið síðustu daga. Lagið sem er samstarfsverkefni Barnamenningarhátíðar, UNICEF, Rauða krossins í Reykjavík og Reykjavík bókmenntaborgar UNESCO vísar til að þess að með aukinni fjölbreytni verður samfélagið litríkara og skemmtilegra.
 
Dagskráin í Hörpu stendur fram á kvöld en meðal viðburða eru Hú hæ vindur þýtur - Lögin hennar Hildigunnar. Um er að ræða samstarfsverkefni Tónskóla Sigursveins við yfir 30 leikskóla í Reykjavík þar sem unnið er með sönglög eftir þekkt íslensk tón- og ljóðskáld.  Hildigunnur Rúnarsdóttir tónskáld var valin að þessu sinni og samdi og útsetti lög fyrir 700 leikskólabörn. Börnin flytja lögin á stóra sviði Eldborgarsalarins klukkan 13 og klukkan 14.30 á morgun. Viðburðurinn er öllum opinn. 


Upptakturinn - Tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna, er spennandi verkefni Barnamenningarhátíðar og Hörpu, tónlistarhúss. Með Upptaktinum er áhersla lögð á að hvetja ungt fólk til að semja tónlist og senda inn eigin tónsmíðar. Valin verk eru fullunnin af fagmönnum með aðstoð tónskálda og flutt af fagfólki í tónlist. Tónverkin verða flutt á metnaðarfullri og glæsilegri tónleikadagskrá í Kaldalónssal Hörpu kl. 17 á morgun. 


Við endurtökum leikinn og sláum til allsherjar dansveislu í Eldborg frá kl.20 -21.30  þar sem listdansskólar höfuðborgarsvæðisins sameina krafta sína. Í ár er boðið upp á fjölbreytta og kraftmikla dagskrá og munu stórir sem smáir dansarar njóta sín. Hér gefst tækifæri fyrir áhorfendur til að sjá unga og efnilega dansara taka sín fyrstu skref á stóru sviði. Sýningin er opin öllum og er fólk hvatt til að mæta með alla fjölskylduna.


Barnamenning verður einnig í hávegum höfð annars staðar á höfuðborgarsvæðinu á næstu dögum og vikum. Í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi verður boðið uppá fjölda viðburða tengdum barna- og unglingamenningu og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi þar.
 

Um Barnamenningarhátíð

Barnamenningarhátíð er ein stærsta hátíð sem haldin er á vegum Reykjavíkurborgar en í boði eru um 150 ókeypis viðburðir fyrir börn og unglinga dagana 19.-24. apríl. Dagskráin fer fram í öllum hverfum borgarinnar; í grunnskólum, frístundaheimilum, félagsmiðstöðvum, leikskólum, menningarstofnunum, Ráðhúsinu og á fleiri stöðum. Hægt er að nálgast ítarlegri upplýsingar á vefnum barnamenningarhatid.is.