Upptakturinn - Tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna, er spennandi verkefni Barnamenningarhátíðar og Hörpu, tónlistarhúss. Með Upptaktinum er áhersla lögð á að hvetja ungt fólk til að semja tónlist og senda inn eigin tónsmíðar. Valin verk eru fullunnin af fagmönnum með aðstoð tónskálda og flutt af fagfólki í tónlist. Tónverkin verða flutt á metnaðarfullri og glæsilegri tónleikadagskrá í Kaldalónssal Hörpu kl. 17 á morgun.
Við endurtökum leikinn og sláum til allsherjar dansveislu í Eldborg frá kl.20 -21.30 þar sem listdansskólar höfuðborgarsvæðisins sameina krafta sína. Í ár er boðið upp á fjölbreytta og kraftmikla dagskrá og munu stórir sem smáir dansarar njóta sín. Hér gefst tækifæri fyrir áhorfendur til að sjá unga og efnilega dansara taka sín fyrstu skref á stóru sviði. Sýningin er opin öllum og er fólk hvatt til að mæta með alla fjölskylduna.
Barnamenning verður einnig í hávegum höfð annars staðar á höfuðborgarsvæðinu á næstu dögum og vikum. Í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi verður boðið uppá fjölda viðburða tengdum barna- og unglingamenningu og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi þar.
Um Barnamenningarhátíð
Barnamenningarhátíð er ein stærsta hátíð sem haldin er á vegum Reykjavíkurborgar en í boði eru um 150 ókeypis viðburðir fyrir börn og unglinga dagana 19.-24. apríl. Dagskráin fer fram í öllum hverfum borgarinnar; í grunnskólum, frístundaheimilum, félagsmiðstöðvum, leikskólum, menningarstofnunum, Ráðhúsinu og á fleiri stöðum. Hægt er að nálgast ítarlegri upplýsingar á vefnum barnamenningarhatid.is.