Auglýst eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna fyrir skóla- og frístundastarf
Skóli og frístund
Viltu vekja athygli á gróskumiklu grunnskólastarfi og veita starfsfólki viðurkenningu og hvatningu?
Veistu af metnaðarfullun þróunar- og nýbreytniverkefnum, skemmtilegum tilraunum eða áhugaverðu samstarfi grunnskóla við leikskóla og/eða frístundastarf?
Allir geta tilnefnt til hvatningarverðlaunanna; foreldrar, kennarar, ömmur og afar, borgarstarfsmenn, leikskólar, grunnskólar, frístundamiðstöðvar, aðrar stofnanir og samtök.
Við val á verðlaunahöfum verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka, svo og að fjölbreytt verkefni fái viðurkenningu. Þrjú verkefni sem skara fram úr verða verðlaunuð.
Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs vegna grunnskóla verða afhent á Öskudagsráðstefnu grunnskólakennara 10. febrúar nk. og felast í viðurkenningarskjali og verðlaunagrip sem starfsstaðurinn fær til eignar.
Skilafrestur vegna tilnefninga er til 25. janúar 2016.
Tilnefningarblað
Skilafrestur vegna tilnefninga er til 25. janúar 2016.
Tilnefningarblað