Virkir öldungar

Velferð Mannlíf

""

Þriðjudaginn 22. september síðastliðinn var haldinn fyrsti sameiginlegi fundur öldungaráðs Reykjavíkurborgar og borgarstjórnar. Öldungaráð hefur það hlutverk að vera nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar til ráðgjafar um málefni og hagsmuni borgarbúa sem eru 67 ára og eldri. 

Fundurinn var haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og var hann vel sóttur.

 Dagur B. Eggertssonar opnaði fundinn með erindi sínu um stefnumörkun í málefnum aldraðra. Að því loknu tók formaður öldungaráðs, Guðrún Ágústsdóttir, við og flutti erindi sitt Til hvers öldungaráð?

Því næst tóku við stuttar framsögur allra sviðsstjóra og að því loknu flutti Pálmi V. Jónsson prófessor og yfirlæknir öldrunarlækninga erindi um aldursvænar borgir. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður félags eldri borgara í Reykjavík steig svo í pontu og fjallaði um málefni sem brenna á eldra fólki í borginni.

Hér fyrir neðan er hægt að skoða efni frá fundinum.

Til hvers öldungaráð? Guðrún Ágústsdóttir

Velferðarsvið. Stefán Eiríksson sviðsstjóri

Umhverfis - og skipulagssvið. Ólöf Örvarsdóttir sviðsstjóri

Menningar - og ferðamálasvið. Svanhildur Konráðsdóttir sviðsstjóri

Aldursvænar borgir. Pálmi V. Jónsson